LANGA Molva molva
Birting ráðgjafar: 12. júní 2026. Útgefið af Hafrannsóknastofnun.
Ráðgjöf
Hafrannsóknastofnun og Alþjóðahafrannsóknaráðið leggja til, í samræmi við aflareglu íslenskra stjórnvalda, að afli fiskveiðiárið 2026/2027 verði ekki meiri en 7 657 tonn.
Stofnþróun
Veiðihlutfall er yfir markmiðum aflareglu stjórnvalda (FMGT) og kjörsókn (FMSY) en undir gátmörkum (Fpa). Stærð hrygningarstofns er yfir aðgerðarmörkum (MGT Btrigger), gátmörkum (Bpa) og varúðarmörkum (Blim).
Langa. Afli eftir veiðarfærum, nýliðun (2 ára), veiðidánartala 8–11 ára og lífmassi hrygningarstofns. Skyggð svæði og öryggisbil sýna 95 % öryggismörk.
Stofnmat og gátmörk
Forsendur ráðgjafar | Aflaregla |
Aflaregla | Ráðgjöf byggir á fiskveiðidánartölu FMGT = 0.3 fyrir 8–11 ára og er margfaldað með SSBy/MGT Btrigger þegar SSBy < MGT Btrigger. Þegar aflareglunni er beitt má vænta þess að fiskveiðidánartala sveiflist milli 0.21 og 0.44. |
Stofnmat | Tölfræðilegt aldurs-aflalíkan (SAM) |
Inntaksgögn | Aldurs og lengdargögn úr afla og stofnmælingum (SMB, SMH og SMN) og heildarafli. |
Nálgun | Viðmiðunarmörk | Gildi | Grundvöllur |
|---|---|---|---|
Aflaregla | MGT Btrigger | 11 100 | Aflaregla |
FMGT | 0.3 | Aflaregla | |
Hámarksafrakstur | FMSY | 0.3 | Leiðir til hámarksafraksturs til lengri tíma, byggt á slembihermunum (EqSim). |
MSY Btrigger | 11 100 | Byggt á Bpa | |
Varúðarnálgun | Blim | 9 000 | Lægsta SSB gildið (2016) með háa nýliðun |
Bpa | 11 100 | Blim x e1.645×0.2 | |
Flim | 0.95 | Fiskveiðidauði sem í framreikningum leiðir til þess að miðgildi hrygningarstofns er við Blim | |
Fpa | 0.62 | Fp05, hámarks F þar sem líkur á því að SSB fari niður fyrir Blim eru < 5% |
Horfur
Atvinnuvegaráðuneytið hefur sett aflareglu fyrir löngu, sem síðast var uppfærð árið 2022 (ICES, 2022). Samkvæmt aflareglunni er veiðidánaratala komandi fiskveiðiárs (FY/Y+1), sem hefst 1. september úttektarárið Y og líkur 31. ágúst ráðgjafarárið Y+1, ákvarðuð á eftirfarandi hátt:
\[ \text{F}_{Y⁄Y+1}=\text{min}\left(\frac{\text{SSB}_Y}{\text{MGT B}_{trigger}} ,1\right) \text{F}_{mgt} \]
Afli seinustu fjóra mánuði ársins Y (september til desember) er veiðidánartala ársins Y sett sem:
\[ \text{F}_Y=\frac{2}{3}\text{F}_{SQ} + \frac{1}{3}\text{F}_{MGT} \]
Fyrir árið Y+1 er F(Y⁄Y+1) is notað. Að lokum er aflamarkið (TACY⁄Y+1) reiknað á eftirfarandi hátt:
\[ \text{TAC}_{Y⁄Y+1}=\frac{1}{3}C[\text{F}_Y]+ \frac{2}{3} C[\text{F}_{Y/Y+1}] \]
þar sem aflinn (C[.]) er reiknaður samkvæmt aflajöfnu Baranovs byggt á tilsvarandi gildum á lífmassa, náttúrulegri dánartölu og veiðidánartölu hvert ár.
Langa. Forsendur fyrir stofnmatsárið og í framreikningum.
Breyta | Gildi | Athugasemdir |
|---|---|---|
F8-11 ára (2026) | 0.31 | jan-ágú: gerir ráð fyrir óbreyttu F (meðaltal síðustu þriggja ára); sep-des: FMGT |
Hrygningarstofn (2027) | 31 840 | Skammtímaspá; í tonnum |
Nýliðun 2 ára (2027) | 3 667 | Meðaltal seinustu 10 ára stofnmatsins; í þúsundum |
Nýliðun 2 ára (2028) | 3 667 | Meðaltal seinustu 10 ára stofnmatsins; í þúsundum |
Afli (2026) | 8 232 | Byggt á F8–11 ára (2026); í tonnum. |
Langa. Áætluð þróun stofnstærðar (tonn) miðað við veiðar samkvæmt aflareglu.
Grunnur | Afli (2026/2027) | Veiðidánartala (2026/2027) | Hrygningarstofn (2028) | % Breyting á hrygningarstofni1) | % Breyting á ráðgjöf2) |
|---|---|---|---|---|---|
Aflaregla | 7 657 | 0.3 | 29 074 | -9 | 21 |
1) Hrygningarstofn árið 2028 miðað við hrygningarstofn 2027 | |||||
2) Ráðlagt aflamark fyrir 2026/2027 miðað við ráðlagt aflamark 2025/2026 (6330 t) | |||||
Ráðlagt aflamark fyrir fiskveiðiárið 2026/2027 er hærra en ráðgjöf síðasta fiskveiðiárs vegna þess að hrygningarstofninn er metinn stærri.
Gæði stofnmats
Stofnmatið í ár metur hrygningarstofn og nýliðun hærri, og veiðidánartölu lægri en stofnmat fyrri ára.
Langa. Núverandi stofnmat (rauð lína) borið saman við stofnmat áranna 2022–2025.
Ráðgjöf, aflamark og afli
Langa. Tillögur um hámarksafla samkvæmt aflareglu, ákvörðun stjórnvalda um aflamark og afli (tonn).
Fiskveiðiár | Tillaga | Aflamark | Afli Íslendinga | Afli annarra þjóða3) | Afli alls |
|---|---|---|---|---|---|
2010/2011 | 7 500 | 7 500 | 9 327 | 837 | 9 327 |
2011/2012 | 8 800 | 9 000 | 10 072 | 1 123 | 10 072 |
2012/2013 | 12 000 | 12 000 | 11 125 | 1 368 | 11 140 |
2013/2014 | 14 000 | 14 000 | 11 794 | 1 763 | 12 982 |
2014/2015 | 14 300 | 14 300 | 11 684 | 1 974 | 13 658 |
2015/2016 | 16 200 | 16 200 | 9 773 | 1 456 | 11 229 |
2016/2017 | 9 343 | 9 343 | 7 291 | 1 135 | 8 426 |
2017/2018 | 8 5981) | 8 598 | 7 017 | 1 309 | 8 326 |
2018/2019 | 6 2551) | 6 255 | 6 927 | 1 101 | 8 028 |
2019/2020 | 6 5991) | 6 599 | 5 972 | 1 183 | 7 155 |
2020/2021 | 5 7001) | 5 700 | 6 201 | 1 012 | 7 213 |
2021/2022 | 4 7351) | 4 735 | 5 814 | 885 | 6 699 |
2022/2023 | 6 0982) | 6 098 | 7 537 | 926 | 8 463 |
2023/2024 | 6 5662) | 6 566 | 8 202 | 1 288 | 9 490 |
2024/2025 | 6 4792) | 6 479 | 8 162 | 1 040 | 9 202 |
2025/2026 | 6 3302) | 6 330 | |||
2026/2027 | 7 6572) | ||||
1) 18 % aflaregla | |||||
2) FMGT = 0.3 | |||||
3) Afli annarra þjóða fyrir 2014 er á almanaksári | |||||
Heimildir og ítarefni
ICES. 2022. Workshop on the evaluation of assessments and management plans for ling, tusk, plaice and Atlantic wolffish in Icelandic waters (WKICEMP). ICES Scientific Reports. 4:37. 271 pp. http://doi.org/10.17895/ices.pub.19663971
Stofnmatsskýrslur Hafrannsóknastofnunar 2026. Langa. Hafrannsóknastofnun, 12. júní 2026.