DJÚPKARFI Sebastes mentella
Birting ráðgjafar: 12. júní 2026. Útgefið af Hafrannsóknastofnun.
Ráðgjöf
Hafrannsóknastofnun og Alþjóðahafrannsóknarráðið ráðleggja, í samræmi við nýtingarstefnu sem mun leiða til hámarksafraksturs til lengri tíma litið (MSY), að afli fiskveiðiárið 2026/2027 verði ekki meiri en 0 tonn.
Stofnþróun
Veiðiálag er undir kjörsókn (FMSY) og gátmörkum (Fpa). Stærð hrygningarstofns er undir aðgerðarmörkum (MSY Btrigger), gátmörkum (Bpa) og varúðarmörkum (Blim).
Djúpkarfi. Afli, nýliðun (3 ára), veiðidánartala og stærð hrygningarstofns. Skyggð svæði og öryggisbil sýna 95 % öryggismörk.
Stofnmat og gátmörk
Forsendur ráðgjafar | Kjörsókn (FMSY) |
Aflaregla | Ekki hefur verið sett aflaregla fyrir þennan stofn |
Stofnmat | Tölfræðilegt aldurs-lengdarlíkan (Gadget) sem notar afla í líkani og spám |
Inntaksgögn | Heildarafli; vísitölur úr stofnmælingu botnfiska við Ísland (IS-SMH), lengdardreifingar úr afla; aldurs- og lengdardreifingar úr IS-SMH |
Nálgun | Viðmiðunarmörk | Gildi | Grundvöllur |
|---|---|---|---|
Hámarksafrakstur | FMSY | 0.04 | Fiskveiðidánartala sem leiðir til hámarksafraksturs, byggt á slembihermunum. |
MSY Btrigger | 217 563 | Bpa | |
Varúðarnálgun | Blim | 156 568 | Bloss. Miðgildi hrygningarstofns 2000–2005 |
Bpa | 217 563 | Blim × e1.645σ, σ = 0.2. | |
Fpa | 0.04 | Hæsta veiðidánartala þar sem líkurnar á því að hrygningarstofn fari niður fyrir Blim eru <5 % | |
Flim | 0.08 | Fiskveiðidánartala sem í framreikningum leiðir til þess að miðgildi hrygningarstofns er við Blim |
Horfur
Djúpkarfi. Forsendur fyrir stofnmatsárið og í framreikningum.
Breyta | Gildi | Athugasemdir |
|---|---|---|
F (2026) | 0.029 | Fiskveiðidánartala sem svarar til áætlaðs heildarafla árið 2026 |
Hrygningarstofn (2027) | 94 522 | Úr framreikningum stofnmats; í tonnum |
Nýliðun 3 ára (2027) | 0.094 | Faldmeðaltal nýliðunar frá 2021-2025; milljónir |
Nýliðun 3 ára (2028) | 0.094 | Faldmeðaltal nýliðunar frá 2021-2025; milljónir |
Afli (2026) | 2 500 | Sett aflamark fyrir 2026; í tonnum |
Djúpkarfi. Áætluð þróun stofnstærðar hrygningarstofns (tonn) miðað við veiðar samkvæmt markmiðum um hámarksafrakstur
Grunnur | Afli (2027) | Veiðidánartala (2027) | Hrygningarstofn (2028) | % Breyting á hrygningarstofni1) | % Breyting á aflamark2) | % Breyting á ráðgjöf3) |
|---|---|---|---|---|---|---|
Hámarksafrakstur | 0 | 0.000 | 93 990 | -0.6 | -100.00 | 0 |
Aðrar veiðisviðsmyndir | ||||||
Fmsy*SSB2026/MSY Btrigger | 1 578 | 0.018 | 92 465 | -2.2 | -36.88 | |
Fmsy | 3 481 | 0.041 | 90 627 | -4.1 | 39.24 | |
F2027 = F2025 | 3 273 | 0.039 | 90 828 | -3.9 | 30.92 | |
1) Hrygningarstofn árið 2028 miðað við hrygningarstofn 2027 | ||||||
2) Ráðlagt aflamark fyrir 2026/2027 miðað við ráðlagt aflamark 2025/2026 (2500 t) | ||||||
3) Ráðlagt aflamark fyrir 2026/2027 miðað við ráðlagt aflamark 2025/2026 (0 t) | ||||||
Ráðlagður afli er 0 t þar sem sem stofninn mun ekki fara yfir varúðarmörk (Blim) í lok ráðgjafartímabilsins, sama hvert veiðihlutfallið verður.
Gæði stofnmats
Niðurstöður stofnmatsins í ár eru í samræmi við fyrri ár.
Djúpkarfi Núverandi stofnmat (rauð lína) borið saman við stofnmat ársins.
Aðrar upplýsingar
Djúpkarfi er hægvaxta og seinkynþroska tegund og er slíkum tegundum sérstaklega hætt við ofveiði. Smáum djúpkarfa (≤30 cm) í stofnmælingaleiðangri hefur fækkað mikið frá árinu 2007 sem gefur til kynna að nýliðun sé lítil. Þar sem ekki er að vænta umtalsverðrar nýliðunar á næstu árum er líklegt að framleiðni stofnsins minnki.
Hrygningarstofn djúpkarfa mun að öllum líkindum vera undir varúðarmörkum (Blim) næsta áratuginn, óháð nýliðun, vegna þess hve seint tegundin verður kynþroska.
Vegna bágs ástands djúpkarfastofnsins er nauðsynlegt að meðafli djúpkarfa í öðrum veiðum sé sem minnstur.
Ráðgjöf, aflamark og afli
Djúpkarfi. Tillögur um hámarksafla, ákvörðun stjórnvalda um aflamark og afli (tonn).
Fiskveiðiár | Tillaga | Aflamark | Afli alls |
|---|---|---|---|
2010/2011 | 10 000 | 12 500 | 12 085 |
2011/2012 | 10 000 | 12 000 | 12 321 |
2012/2013 | 10 000 | 10 000 | 10 396 |
2013/2014 | 10 000 | 10 000 | 9 753 |
2014/2015 | 10 000 | 10 000 | 9 037 |
2015/2016 | 10 000 | 10 000 | 9 599 |
2016/2017 | 12 922 | 12 922 | 8 556 |
2017/2018 | 11 786 | 11 786 | 10 540 |
2018/2019 | 13 012 | 13 012 | 8 660 |
2019/2020 | 12 492 | 12 492 | 10 637 |
2020/2021 | 12 384 | 12 384 | 11 503 |
2021/2022 | 7 926 | 7 926 | 10 035 |
2022/2023 | 6 336 | 6 336 | 8 301 |
2023/2024 | 0 | 0 | 2 258 |
2024/2025 | 0 | 3 800 | 3 862 |
2025/2026 | 0 | 2 500 | |
2026/2027 | 0 |
Heimildir og ítarefni
Stofnmatsskýrslur Hafrannsóknastofnunar 2026. Djúpkarfi. Hafrannsóknastofnun, 12. júní 2026.