LÝSA Merlangius merlangus

Ráðgjöf 2026/2027

1 320

tonn

Ráðgjöf 2025/2026

1 100

tonn

Breyting á ráðgjöf

20 %

Birting ráðgjafar: 12. júní 2026. Útgefið af Hafrannsóknastofnun.


Ráðgjöf

Hafrannsóknastofnun leggur til, í samræmi við nýtingarstefnu sem mun leiða til hámarksafraksturs til lengri tíma litið (MSY), að afli fiskveiðiárið 2026/2027 verði ekki meiri en 1 320 tonn.

Stofnþróun

Stofnstærð er yfir aðgerðarmörkum (Itrigger) og veiðiálag er undir kjörsókn (HRMSY proxy).

Lýsa. Afli eftir veiðarfærum, nýliðunarvísitala (≤ 20 cm) úr SMB, vísitala veiðihlutfalls og lífmassavísitala (≥ 40 cm) úr SMB. Skyggð svæði og öryggisbil sýna 95 % öryggismörk.

Stofnmat og gátmörk

Forsendur ráðgjafar

Hámarksafrakstur

Aflaregla

Ekki hefur verið sett aflaregla fyrir þennan stofn

Stofnmat

Byggt á tímaháðum breytingum í stofnmælingum

Inntaksgögn

Afli og vísitölur úr stofnmælingu botnfiska vori (SMB)

Nálgun

Viðmiðunarmörk

Gildi

Grundvöllur

Hámarksafrakstur

Itrigger

1 812

Iloss×1.4; Iloss er skilgreint sem lægsta vísitalan í SMB 1985–1999

HRMSY proxy

0.17

Meðaltal af hlutfalli afla og lífmassavísitölu fyrir þau ár þar sem veiðiálag er undir viðmiðunarmörkum (f > 1, þar sem f = meðallengd í ár / LF=M byggt á Lc (lengd þegar fiskurinn fer veiðast), sem er breytilegt milli ára.

Horfur

Grunnur ráðgjafar fylgir forskrift Alþjóðahafrannsóknaráðsins fyrir stofna þar sem ekki er hægt að framkvæma tölfræðilegt stofnmat en til eru vísitölur sem taldar eru gefa mynd af breytingum í stofnstærð (ICES, 2025). Ráðgjöfin byggir því á reglu 2.2 úr flokki 3, svokallaðri chr-reglu. Lífmassavísitala fyrir lýsu 40 cm og stærri úr SMB er margfölduð með vísitölu veiðiálags við hámarksafrakstur (HRMSY proxy), gátmörk vísitölu í hlutfalli við aðgerðarmörk (b) og margfaldara byggðum á lífssögu (m). Sveiflujöfnun var beitt þar sem aukning frá síðustu ráðgjöf er meiri en 20 %.

Lýsa. Útreikningur ráðgjafar.

Ay: Ráðgjöf fyrir 2025/2026

1 100

Lífmassavísitala

Vísitala (I2026)

18 239

Vísitala veiðihlutfalls

HRMSY proxy: Veiðiálag miðað við hámarksafrakstur (meðaltal afla í hlutfalli við lífmassavísitölu fyrir ár þar sem f > 1, þar sem f = Lmean / LF = M)

0.173

Gátmörk

Aðgerðarmörk vísitölu (Itrigger = Iloss*1.4)

1 812

b: Vísitala í hlutfalli við aðgerðamörk, min(I2026 / Itrigger, 1)

1

Varúðarlækkun til þess tryggja hrygningarstofn fari ekki undir gátmörk (Blim) með 95 % líkum

m: margfaldari (byggður á lífssögu)

0.5

Reiknuð ráðgjöf1)

1 580

Sveiflujöfnun (+20 % / -30 % borið saman við Ay, aðeins beitt ef b 1)2)

1

Ráðgjöf fyrir 2026/2027

1 320

% breyting á ráðgjöf3)

20

1) Ay+1 = Iy × HRMSY proxy × b × m, takmarkað með sveiflujöfnun

2) min{max(0.7Ay, Ay+1), 1.2Ay}

3) Tölur í töflu eru námundaðar. Útreikningar eru gerðir með ónámunduðum tölum og því gætu reiknuð gildi ekki stemmt

Ráðlagt aflamark fyrir komandi fiskveiðiár hækkar vegna þess vísitala stofnstærðar hefur hækkað.

Gæði stofnmats

Stofnmæling botnfiska í mars (SMB) nær yfir allt veiðisvæði lýsu.

Aðrar upplýsingar

Nýliðun mældist lítil árin 2009–2014 en hefur aukist síðan.

Ráðgjöf, aflamark og afli

Lýsa. Tillögur um hámarksafla, ákvörðun stjórnvalda um aflamark og afli (tonn).

Fiskveiðiár

Tillaga

Aflamark

Afli alls

2019/2020

836

607

2020/2021

1  003

844

2021/2022

1  137

826

2022/2023

1  091

1  263

2023/2024

1  309

722

2024/2025

1  571

694

2025/2026

1  100

2026/2027

1  320

Heimildir og ítarefni

ICES. 2025. ICES Guidelines - Advice rules for stocks in category 2 and 3. Version 3. ICES Guidelines and Policies - Advice Technical Guidelines. 31 pp. https://doi.org/10.17895/ices.pub.28506179

Stofnmatsskýrslur Hafrannsóknastofnunar 2026. Lýsa. Hafrannsóknastofnun, 12. júní 2026.