Hrognkelsi Cyclopterus lumpus
Birting ráðgjafar: 26. mars 2026. Útgefið af Hafrannsóknastofnun.
Ráðgjöf
Hafrannsóknastofnun leggur til, í samræmi við nýtingarstefnu sem mun leiða til hámarksafraksturs til lengri tíma litið, að afli fiskveiðiárið 2025/2026 verði ekki meiri en 2 932 tonn. Hafrannsóknastofnun leggur jafnframt til að upphafsaflamark fiskveiðiárið 2026/2027 verði 973 tonn.
Stofnþróun
Grásleppuvísitala er undir aðgerðarmörkum (ltrigger) en yfir varúðarmörkum (Ilim). Vísitala veiðihlutfalls er við kjörsókn (FMSY proxy).
Grásleppa. Grásleppuafli eftir veiðarfærum, vísitala veiðihlutfalls (FMSY proxy sýnd með brotinni línu) og lífmassavísitala grásleppu úr SMB. Skyggð svæði sýna 95 % öryggismörk.
Stofnmat og Gátmörk
Forsendur ráðgjafar | Hámarksafrakstur |
Aflaregla | Ekki hefur verið sett aflaregla fyrir þennan stofn |
Stofnmat | Byggt á tímaháðum breytingum í stofnmælingum |
Inntaksgögn | Afli og vísitölur úr stofnmælingu botnfiska að vori (SMB) |
Nálgun | Viðmiðunarmörk | Gildi | Grundvöllur |
|---|---|---|---|
Hámarksafrakstur | Itrigger | 5 403 | Ilim×1.4 |
FMSY proxy | 0.75 | Meðaltal Fproxy árin 2014-2020 | |
Varúðarnálgun | Ilim | 3 859 | Lægsta sögulega gildi |
Ráðgjafareglan byggir á vísitölu veiðihlutfalls, FMSY proxy = 0.75, sem er afli sem hlutfall af vísitölu í SMB. Ef SMB vísitala grásleppu (Iy) er á milli Ilim og Itrigger lækkar veiðihlutfall sem stefnt er að í samræmi við eftirfarandi hlutfall: \(\frac{I_{y}}{I_{trigger}}\). Ef grásleppuvísitala SMB fer undir lægsta gildi stofnmælingarinnar (Ilim) verður sá hluti aflamarks sem byggir á því ári settur sem núll. Vegna óvissu í mælingunum er tekið tillit til vísitölu fyrra árs (30 % vægi) á móti nýrri mælingu (70 % vægi) við útreikning ráðlagðs hámarksafla (Kennedy ofl. 2021).
Hrognkelsi. Útreikningur ráðgjafar.
Ay: Ráðgjöf um upphafsaflamark 2025/2026 (Hafrannsóknastofun 2025) | 662 |
Lífmassavísitala | |
i: Vísitala (I2026) | 4 833 |
Gátmörk | |
Aðgerðarmörk vísitölu (Itrigger=Ilim*1.4) | 5 403 |
b: Vísitala í hlutfalli við aðgerðamörk, min{I2026/Itrigger, 1} | 0.8945 |
Ráðgjafarregla | |
FMSY proxy | 0.75 |
f: Veiðihlutfall (FMSY proxy x b) | 0.6709 |
m: margfaldari stofnmatsárs | 0.70 |
n: margfaldari ráðgjafaárs | 0.30 |
Ráðgjöf fyrir 2025/20261) | 2 9323) |
Upphafsráðgjöf fyrir 2026/20272) | 9733) |
% breyting á ráðgjöf | 6 |
1) [f × m × i + Ay] | |
2) [f × n × i] | |
3) Tölur í töflu eru námundaðar. Útreikningar eru gerðir með óbreyttum tölum og því gætu reiknuð gildi ekki stemmt | |
Gæði stofnmats
Stofnmæling botnfiska á Íslandsmiðum (SMB) er talin ná yfir útbreiðslu grásleppu með tilliti til dreifingar í tíma og með dýpi. Stofnvísitala grásleppu sveiflast töluvert, en talið er mikilvægt að ráðgjöf hvers árs miðist af mestu leyti við stofnvísitölu sama árs.
Aðrar upplýsingar
Stofnunin leggur áherslu á að bæta þurfi skráningu meðafla og brottkasts við grásleppuveiðar því slíkt hefur þýðingu fyrir nýtingu og stjórnun veiða á stofninum og öðrum tegundum.
Meðafli fugla og sjávarspendýra við grásleppuveiðar árin 2020-2023 minnkaði miðað við fyrri ár (Hafrannsóknastofnun 2024). Ástæður eru taldar tengjast auknu eftirliti, bæði með flygildum og með eftirlitsmönnum um borð í bátum. Árið 2025 var tíðni eftirlitsferða of lág til að gefa marktækt mat á meðafla.
Ráðgjöf, aflamark og afli
Hrognkelsi. Tillögur um hámarksafla ásamt upphafsaflamarki og afla (tonn).
Fiskveiðiár | Tillaga | Upphafstillaga | Afli alls |
|---|---|---|---|
2011/2012 | 3 700 | 4 806 | |
2012/2013 | 4 000 | 4 207 | |
2013/2014 | 4 300 | 3 971 | |
2014/2015 | 6 200 | 6 111 | |
2015/2016 | 6 800 | 5 487 | |
2016/2017 | 6 350 | 4 587 | |
2017/2018 | 5 487 | 1 854 | 4 531 |
2018/2019 | 4 805 | 1 557 | 5 059 |
2019/2020 | 5 200 | 1 392 | 5 334 |
2020/2021 | 9 040 | 1 634 | 7 606 |
2021/2022 | 6 972 | 3 174 | 4 407 |
2022/2023 | 4 411 | 1 627 | 4 013 |
2023/2024 | 4 030 | 1 193 | 3 971 |
2024/2025 | 2 7601) | 1 216 | 2 520 |
2025/2026 | 2 932 | 662 | |
2026/2027 | 973 | ||
1) Ráðlagt aflamark var aflamark stjórnvalda meðan að fyrir fyrri ár var veiðunum stýrt með sóknardagakerfi. | |||
Heimildir og ítarefni
James Kennedy og Sigurður Þ. Jónsson 2020 . Umreikningur á fjölda tunna af grásleppuhrognum yfir í óslægðan afla byggður á veiðidagbókum. Haf- og vatnarannsóknir. HV 2020-32. 9 bls. https://www.hafogvatn.is/static/research/files/hv2020-32.pdf [in English: Converting number of barrels of lumpfish roe to ungutted landings based on logbook data. HV 2020-33, 9 pp. https://www.hafogvatn.is/static/research/files/hv2020-33.pdf]
James Kennedy, Sigurður Þór Jónsson, Höskuldur Björnsson, Guðmundur J. Óskarsson, Bjarki Þór Elvarsson, Guðmundur Þórðarson (2021) Report on benchmark assessment and revision of an advisory rule for lumpfish around Iceland. KV 2021-1. Kver Hafrannsóknastofnunar https://www.hafogvatn.is/static/research/files/kv2021-1.pdf
Hafrannsóknastofnun 2024. Meðafli fugla og sjávarspendýra í grásleppuveiðum árin 2020–2023. Hafrannsóknastofnun, janúar 2024. https://www.hafogvatn.is/static/extras/images/taekniskyrsla-medafli-fugla-og-spendyra-i-grasleppuveidum-20231429811.pdf
Hafrannsóknastofnun 2025. Hrognkelsi Cyclopterus lumpus. https://www.hafogvatn.is/static/extras/images/48-lum_advice_is_2025.html