Makríll

Scomber scombrus


Stofnmatskýrslur
Birt af

Hafrannsóknastofnun

Birt

30 September 2026

Helstu niðurstöður

  • Makrílafli íslenskra skipa árið 2025 var 129 628 tonn. Um 30 % af honum var veiddur í íslenskri efnahagslögsögu og 70 % á alþjóðlegu hafsvæði í Noregshafi.

  • Sýnataka úr afla var yfirgripsmikil, og nemur sem eitt sýni fyrir hver 1300 tonn af afla.

  • Lengdardreifing í afla sýnir að hlutfall stærri fisks minnkaði árið 2025 samanborið við 2024. Meðallengd var 37 cm árið 2025 sem er 1 cm minna en 2024.

  • Þéttleiki makríls, mældur í uppsjávarleiðangri að sumarlagi, í íslenskri efnahagslögsögu 2026 mældist lítill í sögulegu samhengi en ívið hærri en sumarið 2025.

Almennar upplýsingar

Makríll er víðförull og útbreiddur uppsjávarfiskur. Hann er hlýsjávartegund sem finnst beggja vegna Norður-Atlantshafsins. Í Norðaustur-Atlantshafi er jafnan talað um einn stofn og er veiðum á honum stjórnað með tilliti til þess. Makrílstofninn er einn af verðmætustu fiskstofnum Evrópu í efnahagslegu tilliti.

Á síðustu öld var makríll sjaldséður flökkufiskur í íslenskri landhelgi en fljótlega eftir aldamótin fór hans að verða vart suðaustan og sunnan við Ísland að sumarlagi (Astthorsson o.fl. 2012). Makríll fór m.a. að veiðast í vaxandi magni sem meðafli í sumarveiðum á norsk-íslenskri vorgotssíld fyrir suðaustan land frá 2000 til 2006 og fannst í fæðu súluunga við Vestmannaeyjar sumarið 2005 (Vigfúsdóttir o.fl. 2009).

Kynþroska makríll fylgir árstíðabundnu göngumynstri á milli aðskilinna sumarfæðusvæða, vetrardvalarsvæða og hrygningarsvæða (Uriarte og Lucio 2001). Makríll hrygnir á landgrunni og landgrunnsbrún meginlands Evrópu frá janúar fram í júlí (Trenkel o.fl. 2014). Hrygningin byrjar syðst og færist norðar, eftir því sem líður á árið. Eftir hrygningu gengur makríll áfram í norður eða norðvestur inn í Norðurhöf og inn í Norðursjó til fæðuleitar yfir sumarmánuðina. Þegar hausta tekur safnast makríll saman í þéttar torfur í norðurhluta Norðursjávar sem ganga síðan suður á bóginn þegar líður á veturinn. Yfir veturinn er makríll dreifður yfir landgrunnsbrún og landgrunn Evrópu frá ströndum Portúgals til Hjaltlandseyja. Ungviðið heldur sig á uppeldissvæðum á landgrunninu við Írland og vestur og norður af Skotlandi, í Biscayaflóa og í Norðursjó uns kynþroska er náð við 2ja eða 3ja ára aldur og byrjar þá árlega göngu með hrygningarstofninum.

Útbreiðsla makríls að sumarlagi hefur tekið miklum breytingum frá síðustu aldamótum (Ólafsdóttir o.fl. 2019). Fram að þeim tíma var sumarfæðuslóð makríls aðallega í Noregshafi, fyrir austan 10°V og sunnan 72°N. Sumrin 2005 og 2006 tók útbreiðslan að aukast í vesturátt úr Noregshafi allt að austurströnd Íslands. Niðurstöður uppsjávarleiðangra sýna að sumarið 2010 náði útbreiðsla makríls vestur fyrir Ísland og nánast að miðlínunni við Grænland, að 30°V. Sumarið 2013 mældist makríll í grænlenskri landhelgi í fyrsta skipti þegar útbreiðslan náði inn í norðurhluta Irmingerhafs, og voru vesturmörk útbreiðslu við 36°V og suðurmörk við 62°N. Útbreiðsla makríls í íslenskri landhelgi minnkaði áberandi mikið fyrir vestan land sumarið 2019 (Ólafsdóttir og Sigurðsson 2021). Sumrin 2024, 2025 og 2026 fannst makríll í mælanlegu magni einungis við suðaustur og austur strönd Íslands en á því svæði varð hans fyrst vart í íslenskri landhelgi upp úr aldamótum (ICES, 2026).

Veiðar

Beinar veiðar á makríl í íslenskri landhelgi hófust sumarið 2007 og hefur árlegur heildarafli íslenskra skipa fram til ársins 2025 verið á bilinu 36-173 þúsund tonn (Mynd 1). Nánast allur makríll er veiddur í flotvörpu (> 99%). Í byrjun veiða var megin hluti aflans veiddur í íslenskri lögsögu. Veiðar á alþjóðlegu hafsvæði jukust árið 2017 og síðan þá hefur mikill hluti aflana verið veiddur þar, frá 32 % til 84 % árlega (Mynd 1).

Mynd 1: Makríll. Landaður afli eftir svæðum og árum samkvæmt aflaskráningarkerfi Fiskistofu.

Fyrstu árin var veiðisvæðið í kantinum suðaustur af landinu og færðist síðan vestur með suðurströndinni (Mynd 2). Á árunum 2011 til 2016 var aðalveiðisvæðið meðfram kantinum frá suðausturlandi til Vestfjarða. Sumarið 2017 byrjaði veiðin að færast austur í Noregshaf og að minnka fyrir vestan landið. Sumrin 2021 og 2022 var nánast engin veiði í kantinum við landið heldur einungis í Noregshafi. Sumrin 2023 og 2024 jókst aftur veiði við landið en hún var takmörkuð við hafsvæði suðaustur af landinu. Sumarið 2025 færðist veiðin að miklu leiti aftur austur í Noregshafi en um þriðjungur var veiddur suðaustur af landinu.

Mynd 2: Makríll. Útbreiðsla veiða íslenskra skipa fyrir árin 2006-2025 samkvæmt afladagbókum.

Síðan árið 2000 hefur árlegur heildarafli úr stofninum sveiflast á bilinu 0,4-1,4 milljón tonn (Mynd 3). Aflatölur frá árum fyrir 2000 eru taldar óáreiðanlegar og hafa minna vægi í stofnmati en tölur eftir 2000.

Mynd 3: Makríll. Skráður afli íslenskra skipa og allra annarra landa á öllum miðum frá 1903 til 2025 samkvæmt aflagrunni ICES.

Sýnataka

Sýnataka úr afla íslenskra skipa fyrir Hafrannsóknastofnun var góð árið 2025 (Mynd 4). Fjöldi sýna, lengdarmælinga og aldursgreininga hefur þannig verið með ágætum frá því að veiðar hófust (Tafla 1).

Mynd 4: Makríll. Veiðislóð seinasta árs samkvæmt afladagbókum og staðsetning aflasýna (x) fyrir Hafrannsóknastofnun.
Tafla 1: Makríll. Fjöldi sýna úr afla, fjöldi fiska lengdarmældir, fjöldi aldursgreindir og allur landaður afli íslenskra skipa eftir árum.
Ár Fjöldi sýna Fjöldi mældir Fjöldi aldursgreindir Afli (t)
2007 21 298 285 36489
2008 26 758 668 112353
2009 60 2238 1945 116160
2010 115 4821 4759 122034
2011 191 8031 4760 159263
2012 244 11421 5604 149366
2013 180 7733 3505 151234
2014 155 6276 3201 172960
2015 160 7195 3425 169336
2016 113 4889 2767 170374
2017 108 4261 2431 167367
2018 77 3403 1907 168331
2019 125 5652 3081 128076
2020 112 4896 2755 151534
2021 109 5070 2637 132127
2022 98 4055 2381 129979
2023 96 3635 2238 141369
2024 64 2381 1476 89638
2025 100 3869 2375 129628

Samsetning afla

Lengdardreifing makríls úr afla eftir árum er sýnd á Mynd 5. Árleg meðallengd makríls í afla sveiflast frá 34 cm til 38 cm. Stærðarsamsetning afla hefur breyst með árunum þar sem stærð makríls hefur aukist síðustu ár samanborið við fyrri ár.