Kolmunni

Micromesistius poutassou


Stofnmatsskýrslur
Birt af

Hafrannsóknastofnun

Birt

30 September 2026

Helstu niðurstöður

  • Kolmunnaafli íslenskra skipa árið 2025 nam 286 760 tonnum og þar af voru 76 % veidd í færeyskri efnahagslögsögu, 16 % í íslenskri og 7 % á alþjóðlegu hafsvæði, mest vestur af Írlandi.

  • Aflasýnitaka var með ágætum og að meðaltali var tekið sýni fyrir hver 2784 tonn veidd.

  • Lengdardreifing afla sýnir stærri meðallengd árið 2025 samanborið við 2024 þar sem stóru árgangarnir frá 2020 og 2021 eru enn uppistaðan í aflanum eða um 60 % árið 2025 samanborið við um 70% árið 2024.

Almennar upplýsingar

Kolmunni (Micromesistius poutassou) er víðförull úthafs-, uppsjávar- og miðsjávarfiskur af þorskaætt, útbreiddur í Norður- og Norðaustur-Atlantshafi, frá Svalbarða og Barentshafi í norðri til Íberíuskaga í suðri (Monstad 2004). Megnið af honum kynþroska 2-4 ára (ICES 2022). Fullorðnir fiskar halda sig yfirleitt á um 300–500 m dýpi, en útbreiðslan ræðst að miklu leyti af hitastigi sjávar og finnst hann sjaldnar í kaldari sjó en 3°C. Helstu hrygningarsvæði kolmunna eru meðfram landgrunnsbrúninni vestan og norðvestan Bretlandseyja, við úthafsbankana Rockall, Rosemary og Porcupine og norður að færeyska landgrunninu. Hrygningarslóðir hafa verið breytilegar á síðustu árum, en rannsóknir sýna að hafstraumar hafa áhrif á svæðaval. Að lokinni hrygningu gengur kolmunni inn í Noregshaf sem gegnir bæði hlutverki uppeldissvæðis og er helsta fæðuslóð hans. Kolmunni gegnir mikilvægu hlutverki í mið- og uppsjávarvistkerfinu, bæði sem afræningi dýrasvifs og minni miðsjávarfiska en einnig sem bráð stærri bolfiska og sjávarspendýra.

Við Ísland finnst kolmunni allt í kringum landið, einkum við suðaustur-, suður- og suðvesturströndina, en þó í breytilegu magni (Bjarnason o.fl. 2021). Magn eins árs kolmunna við Ísland helst í hendur við sterka árganga sem ganga inn í stofninn, sem virðist vera ráðandi þáttur í útbreiðslu hans við Íslandsstrendur, óháð þeim umhverfisbreytingum sem hér hafa átt sér stað. Hér má lesa meira um líf- og líflandafræði kolmunna: https://www.hafogvatn.is/is/sjavardyr/kolmunni-1.

Veiðar

Kolmunnaveiðar íslenskra skipa hófust upp úr 1995 og hefur heildarafli íslenskra skipa fram til ársins 2025 verið á bilinu frá um 1 þúsund tonnum til rúmlega 500 þúsund tonna (Mynd 1). Árið 2011 voru engar beinar veiðar á kolmunna vegna lítillar stofnstærðar og veiddist hann aðeins sem meðafli í öðrum veiðum. Í upphafi var veiðin aðallega inna íslenskrar lögsögu en helstu veiðisvæðin færðust fljótlega í færeyska lögsögu þar sem þau er enn í dag. Nánast allur kolmunni er veiddur í flotvörpu (> 99%).

Mynd 1: Kolmunni. Landaður afli íslenskra skipa eftir svæðum og árum samkvæmt aflaskráningarkerfi Fiskistofu frá 1997 til 2025.

Fyrstu árin voru veiðisvæðin beggja vegna við hrygginn á milli Íslands og Færeyja (Mynd 2). Á árunum 2007-2008 færðist aðalveiðisvæðið að landgrunnskantinum suður af Færeyjum og hefur haldist þar síðan.

Mynd 2: Kolmunni. Útbreiðsla veiða íslenskra skipa árin 1997-2025 samkvæmt afladagbókum.

Í upphafi veiða Íslendinga, þegar veitt var við Ísland, var aðalveiðitímabilið yfir sumarið og fram á haust (Mynd 3). Eftir að veiðisvæðið færðist suður til Færeyja færðist einnig veiðitímabilið yfir á vormánuði. Síðan 2005, hefur tæplega 2/3 til100 % af ársafla verið veitt á fyrri hluta árs. Veiði á fyrstu mánuðum ársins er annarsvegar háð leyfilegum hámarksafla í kolmunna og hinsvegar af loðnukvóta. Því minni sem loðnukvótinn er, því meiri verður kolmunnaveiðin frá janúar og fram í mars.

Mynd 3. Kolmunni. Áætlað hlutfall afla íslenskra skipa eftir mánuði og ári árin 1997-2025 samkvæmt afladagbókum.

Margar þjóðir stunda veiðar á kolmunna sem hófust á sjöunda áratugnum síðustu aldar og jukust hratt um miðjan áttunda áratugarins þegar ársaflinn fór yfir 100 þúsund tonn (Mynd 4). Síðan þá hefur árlegur heildarafli úr stofninum sveiflast verulega og verið á bilinu frá um 100 þúsund tonnum til tæplega 2,5 milljón tonna.

Mynd 4: Kolmunni. Skráður afli fyrir öll lönd á öllum miðum fyrir árin 1963-2025 samkvæmt aflagrunni ICES.

Sýnataka

Sýnataka úr afla íslenskra skipa fyrir Hafrannsóknastofnun var góð árið 2025 (Mynd 5). Fjöldi sýna, lengdarmælinga og aldursgreininga hefur þannig verið með ágætun frá því að skipulögð sýnasöfnun úr veiði hófst árið 1998 (Tafla 1). Engin aflasýni voru tekin árið 2011 vegna þess að beinar veiðar á kolmunna voru takmarkaðar.