Almennar upplýsingar
Loðna er lítill uppsjávarfiskur sem myndar torfur. Hún er kaldsjávartegund sem lifir á heimskautsvæðum og jöðrum þeirra í Norður-Atlantshafi og Norður-Kyrrahafi. Loðna á svæðinu kringum Ísland, Austur-Grænland og Jan Mayen er talin vera sérstakur stofn.
Loðnuveiðar hófust á Íslandi um miðjan sjöunda áratuginn. Auk þess að vera mikilvægur nytjastofn er loðna lykiltegund í vistkerfi Íslands. Hún nærist á smáum svifdýrum, sérstaklega krabbaflóm, en einnig á marflóm og ljósátu. Einnig er hún mikilvæg fæða fyrir þorsk, ufsa, ýsu, lúðu og aðrar nytjafiska. Hún er einnig mikilvæg fæða fyrir hvali og fugla. Þannig gegnir loðnan mikilvægu hlutverki í að flytja orku og næringarefni upp í efri lög fæðuvefsins. Kjörhitastig fyrir loðnu er venjulega 1-3°C á fæðugöngu og er það þá oft við syðsta hluta kalds heimskautasjávar. Þegar fullorðin loðna gengur frá fæðusvæðum norður af Íslandi er hún einkum talin fara inn á landgrunnið norðan við Ísland og ganga síðan réttsælis umhverfis landið. Hluti megin göngunnar heldur áfram vestur fyrir land. Hrygning fer fram á grunnsævi í mars–apríl í tiltölulega hlýjum sjó sunnan og suðvestan lands. Hrygningar hefur einnig orðið vart norðan við landið en umfang þeirrar hrygningar hefur verið talið lítið samanborið við heildar magnið sem hrygnir í suðri. Meirihluti loðnunnar deyr eftir hrygningu, yfirleitt þriggja ára gömul, en aðallega hrygnur geta lifað af hrygninguna (Christiansen og fél. 2008). Göngur loðnu stuðla að miklu orkuinnflæði inn í vistkerfi landgrunnsins við Ísland. Lirfur og ungviði rekur með straumum rangsælis eftir landgrunninu norðan og austan Íslands og í breytilegu magni til Grænlandssunds og á landgrunn Austur-Grænlands. Uppeldissvæði loðnunnar eru á hafsvæðum norðan við Ísland og í auknum mæli á landgrunninu við Austur-Grænland (Bardarson o.fl., 2021).
Fiskveiðar
Engar veiðar fóru fram á veiðitímabilinu 2023/2024. Heildarafli loðnunnar frá upphafi er sýndur á Mynd 1 og skipting afla íslenskra skipa eftir veiðitímabilum má sjá á Mynd 2.
Breytingar á veiðitækni og veiðimynstri
Engar veiðar fóru fram á veiðitímabilinu 2023/24. Sögulega hefur meirihluti aflans verið tekinn í hringnót, en breytilegt er eftir vertíðum hve mikið hefur verið veitt í flottroll , tengt stærð aflamarks og hvenær það er gefið út. Talið er að brottkast hafi verið óverulegt.
Stofnmat
Bergmálsmælingaleiðangrar
Loðnustofninn á Íslands-Austur Grænlands-Jan Mayen svæðinu hefur verið metinn með bergmálsmælingum árlega síðan 1978. Mælingar hafa verið gerðar að hauslagi (september–-desember) og á veturna (janúar–-febrúar). Yfirlit er gefið í stofnviðauka (stock-annex) Norðvestur vinnunefndar Alþjóða hafrannsóknaráðsins NWWG, ICES.
Haustmæling 2024
Haustmælingar loðnu hafa það að markmiði að meta stærð bæði fullorðins og uppvaxandi hluta loðnustofnsins (Bardarson og fél. 2024). Frá því árið 2010 hafa haustmælingar hafist í september (og að hluta til seint í ágúst), mánuði fyrr en árin þar á undan. Þetta var gert vegna vandkvæða við að ná utan um útbreiðslu stofnsins vegna hafíss og erfiðra veðurskilyrða síðla hausts á norðvestlægari fæðuslóð en í upphafi 21. aldar (Vilhjálmsson, 2007).
Fyrir hönd Hafrannsóknastofnun tók r/s Árni Friðriksson þátt í leiðangrinum í upphafi, eða þar til þurfti að skipta honum út fyrir f/s Polar Ammassak (vegna bilunar í vél Árna) og fyrir hönd Grænlensku náttúrufræðistofnunarinnar (GINR, Greenland Institute of Natural Resources) tók r/s Tarajoq þátt (Mynd 3). Rannsóknasvæðið var á og meðfram landgrunnsbrún Austur-Grænlands frá um 64°30´N að um 72°15´N, og náði einnig yfir Grænlandssund og landgrunnsbrúnina norðvestan við Ísland. Íslandshaf, Kolbeinseyjarhryggur og Grænlandshaf voru einungis lítillega könnuð vegna tímaskorts og af sömu ástæðum voru sjórannsóknir og sýnataka á dýrasvifi takmarkaðar samanborið við fyrri ár. Tafir urðu einnig vegna slæms veðurs.
Almennt takmarkaði hafís ekki yfirferð rannsóknaskipanna, þó höfðu borgarís og skortur á kortlagningu hafsbotns stundum áhrif á leiðarlínur og takmarkaði hve nálægt strönd Grænlands hægt var að komast.
Kynþroska loðna sást aðallega utan landgrunnsins út af Vestfjörðum og norðvestan við Ísland (Mynd 4). Í vestanverðu Grænlandssundi var kynþroska loðna blönduð við ókynþroska loðnu, en að mestu kynþroska loðna fannst austar. Líkt og á síðasta ári náði útbreiðsla kynþroska loðnu aðeins stutt austur af Grænlandssundi og það er aftur mikil breyting frá athugunum haustið 2022, þegar kynþroska loðnu var að finna meðfram landgrunnshlíðum Austur-Grænlands á svæðinu suður, austur og norður af Scoresbysundi (leiðangursskýrsla haustmælingar 2022). Það fannst heldur engin loðna við Vestur-Jan Mayen hrygg eða Kolbeinseyjarhrygg. Almennt voru engin merki um verulegt magn loðnu austan við Kolbeinseyjarhrygg né meðfram landgrunnshlíðum út af norðurlandi. Norðan og norðvestan við íslands og með suðvesturhluta grænlenska landgrunnsins var að finna ungviði (0-grúppa) af ýmsum tegundum, þar á meðal loðnu (þó ekki magngreind). Ókyþroska loðna víða á grænlenska landgrunninu, aðallega á suðvesturhluta rannsóknasvæðisins og í Grænlandssundi (Mynd 4).
Heildarmat lífmassa loðnu var 624 722 tonn. Tafla 3 í viðauka gefur fjölda og lífmassa mismunandi stofnhluta skipt eftir aldri og lengd.
Söguleg þróun meðalþyngdar 1 og 2 ára loðnu í haustmælingum er sýnd í Mynd 5.
Loðnueiðangrar veturinn 2024/2025
Vetrarleiðangrar fóru fram frá því í desember 2024 allt til loka febrúar 2025. Meginmarkmið rannsóknanna var að meta þann hluta stofnsins sem sem stefnir að hrygingu í mars með bergmálsmælingu og trollsýnatöku. Leiðangrarnir voru skipulagðir í samvinnu eins íslensks rannsóknaskips og nokkurra íslenskra og grænlenskra fiskiskipa. Vísindamenn frá Hafrannsóknastofnun voru um borð í hverju skipi, fylgdust með söfnun og túlkuðu bergmálsgögnin jafnharðan. Dýptarmælar allra þátttakenda voru kvarðaðir, yfirleitt skömmu fyrir upphaf leiðangurs.
Desember 2024
Fyrsta vetrarrannsóknin var framkvæmd í desember 2024 með þáttöku f/s Aðalsteinn Jónsson (Mynd 6). Farið var í þennan leiðangur að tillögu SFS og var það mat Hafrannsóknastofnunar að hann gæti skilað verðmætum upplýsingum. Markmið leiðangursins var að meta dreifingu loðna á fyrstu stigum göngu inná landgrunnið og hversu langt suður og austur hún næði, til að hafa til hliðsjónar við skipulagningu heildarmælingar á stofninum í janúar. Niðurstöður þessa leiðangurs voru ekki notaðar í stofnmati. Slæmt veður hamlaði rannsókninni, og aðeins varð vart við fáeinar loðnutorfur. Um 30 000 tonn af hrygningarloðnu voru mældust, aðallega nálægt Kolbeinseyjarhrygg.
Janúar 2025
Önnur vetrarmæling var framkvæmd frá 15. til 28. janúar 2025 með þátttöku r/s Árna Fríðrikssonar og f/s Barða, Heimaeyjar og Polar Ammassak (Mynd 7). Settar voru út leiðarlínur með yfirferð innan þriggja svæða sem austan, norðan og norðvestan við Ísland. Í leiðangrinum fundust mest af kynþroska loðnu norðaustan og austan lands (Mynd 7). Ungloðna fannst í mestum mæli syðst á norðvestursvæði, í Grænlandssundi. Hrygningarstofn var metinn 180 000 tonn fyrir Austurlandi og um 50 000 tonn á norðvestursvæði. Tafla 4 í viðauka gefur fjölda og lífmassa mismunandi stofnhluta skipt eftir aldri og lengd.
Þriðja vetrarloðnumælingin fór fram út af Austur- og Suðausturlandi með þátttöku f/s Polar Ammassak og Aðalsteins Jónssonar frá 27. til 31. janúar (Mynd 8). Leiðangurinn var settur upp sem tvær sjálfstæðar yfirferðir (hvor á móti annarri) með það að markmiði að endurtaka fyrri janúarmælinguna. Leiðangurinn var farinn að tillögu SFS og það var mat Hafrannsóknastofnunar að hann gæti skilað vísindalegum niðurstöðum.
Í þriðju mælingunni var mælt á móti almenntri göngustefnu loðnunnar öfugt við fyrr í mánuðinum. Magn kynþroska loðnu sem mældist fyrir austurlandi var minna (130 000 tonn) en í fyrri yfirferð í janúar (frá 15. til 28. janúar). Rannsóknasvæðið í seinni janúaryfirferðinni var takmarkaðra en í þeirri fyrri og vísbendingar voru um að einhver loðna hefði verið gengin af svæðin (könnun Polar Ammassak grunnt úti fyrir Norðfirði og Mjóafirði). Engin loðnusýni voru tekin í þessari yfirferð. Því leit Hafrannsóknastofnunin svo á að ekki hefði náðst yfir alla loðnu á svæðinu í þessari yfirferð og að fyrri janúaryfirferðin væri betra mat á stærð stofnins.
Febrúar 2025
Fjórða vetrarrannsóknin fór fram frá 8. til 19. febrúar (Mynd 9) með þátttöku r/s Árna Fríðrikssonar, f/s Heimaeyjar og f/s Polar Ammassak. Meginmarkmið þessa leiðangurs var að meta hvort meiri loðna hefði gengið á svæðið úr norðri, eða undan hafís sem var á svæðinu norðan og norðvestan við Vestfirði og Norðurland í fyrri mælingu á svæðinu (Mynd 9). Kynþroska loðna fannst aðallega norður af Vestfjörðum og Norðurlandi og var metin alls 98 200 tonn. Þetta mat bendir til þess að meiri loðna hefði gengið inná svæðið frá því í janúar (en þá mældust 50 000 tonn á þessum slóðum). Hafrannsóknastofnunin telur að þessi yfirferð gefi betri mynd af loðnu á norðvestursvæði og ætti ætti nota við stofnmat með janúarmælingu á austursvæði. Tafla 5 í viðauka gefur fjölda og lífmassa mismunandi stofnhluta skipt eftir aldri og lengd.
Fimmti leiðangurinn, sem SFS lagði til að yrði farinn og Hafrannsóknastofnun var tilbúin að taka þátt í, hafði sama markmið og fjórða yfirferð, þ.e. hvort meiri loðna hefði gegngið inná á svæði norður og norðvestur af landinu. Leiðangurinn fór fram 24.–28. febrúar (Mynd 10) með þátttöku f/s Aðalsteins Jónssonar og f/s Polar Ammassak. Alls mældust 75 000 tonn af kynþroska loðnu þannig að engin teikn vorum um viðbótargöngu inná svæðið. Þessi leiðangur var skipulagður með gisnari yfirferð til að komast yfir svæðið í Græanlandssundi í takmörkuðum veðurglugga, sem gæti hafa leitt til ófullnægjandi yfirferðar til að ná utan um stofninn. Því voru niðurstöður þessarar yfirferðar ekki notaðar í stofnstærðarmati.
Að teknu tilliti til upplýsinga hér að ofan, er lokamat kynþroska hluta loðnstofnsins (veiðistofns) byggt á fyrri yfirferð í janúar fyrir Austurlandi (Mynd 7) og febrúar) og fyrri yfirferð í febrúar norður af Vestfjörðum (Mynd 10). Niðurstaðan var 278 000 tonn alls (SSB = 180 000 tonn í janúar og 98 200 tonn í febrúar).
Niðurstöður afránslíkans
Að loknu stofnmati voru 100 þúsund slembivalshermanir með endurísetningu notaðar sem upphafsgildi fyrir keyrslu afránslíkansins. Niðurstöður úr keyrslum afránslíkansins eru gefnar í Tafla 1 og sýndar á Mynd 12 til Mynd 13.
| meðatal | 5% | 25% | 50% | 75% | 95% | |
|---|---|---|---|---|---|---|
| SSB | 184.37 | 114.00 | 151.01 | 180.71 | 213.77 | 267.19 |
| Predation | 98.89 | 65.93 | 82.72 | 96.58 | 112.66 | 139.47 |
Líkanið (ICES 2023a, ICES 2023b) tekur til afráns helstu fisktegunda á göngutíma loðnunnar. Flæðirit sem sýnir hvernig líkanið er uppsett má finna á Mynd 11.
Aránslíkanið (ICES 2023a, ICES 2023b) á við um þann hluta loðnustofnsins sem fer réttsælis í kringum Ísland. Flest ár hefur meirihluti stofnsins farið þessa leið, og næstum öll veiði hefur verið tekin úr þessum hluta stofnsins. Gert er ráð fyrir að allur loðnustofninn sé fyrir austan 15. janúar, og 15. mars er gert ráð fyrir að allur loðnustofninn hrygni í suður- og suðvesturhlutanum, með hærri hlutfall í suðvestri. Gert er ráð fyrir að afræningjarnir (þorskur, ýsa og ufsi) séu kyrrstæðir á tímabili loðnugöngunnar og rúmfræðileg dreifing þeirra er fengin úr stofnmælingu botnfiska í mars frá 1985 fram að síðasta ári. Heildarfjöldi hvers afræningja er byggður á spá fyrir núverandi ár útfrá á mati fyrra árs.
Stærð hrygningarstofnsins er byggð á samantekt haustmælingar (með vogtölu 1/3) og vetrarmælingu (með vogtölu 2/3), sem báðar eru taldar hafa náð yfir útbreiðslu kynþroska hluta stofnsins. Niðurstöður þessara mælinga voru svipaðar. Vetrarmælingin er byggð á niðurstöðum janúarmælingar fyrir svæðið austan Kolbeinseyjarhryggjar (CV=0.36) og febrúarmælingar fyrir vesturhlutann (CV=0.33)(Tafla 2). Vetrarmælingum í janúar gaf lægra mat á hrygningarstofni en haustmæling. Hins vegar sýndi vetrarmæling í febrúar að bæst hafði við kynþroska hluta stofnsins. Því voru niðurstöður úr tveimur vetrarmælingum (janúar og febrúar) notuð ásamt haustmælingu til að spá fyrir um stöðu og þróun loðnastofnsins, þ.m.t. sem upphafsgildi afránslíkans.
Athugið að það var nauðsynlegt að endurskoða kvörðun dýptarmæla eins skipanna sem tóku þátt í haustleiðangri 2024 (Polar Ammassak) eftir að ráðgjöf var birt í október 2024. Þetta leiddi til 10 000 tonna hækkunar á mati um veiðistofns. Þessi leiðrétting hefði ekki leitt til breytinga á ráðgjöf í október 2024.
Aflaregla
Aðferðir
Markmiðið aflareglunnar er að tryggja að a.m.k. 114 000 tonn (= Blim) verði eftir til hrygningar. Upphafs, milli- og loka aflamark eru ráðlögð út frá bergmálsmælingum.
Upphafsráðgjöf um aflamark fyrir næsta fiskveiðitímabil er gefin út af ICES í júní og byggir á haustrannsóknum á stofnvísitölu ókynþroska loðnu.
Milliaflamarksráðgjöf er gefin út af Hafrannsóknastofnuninni á haustin og byggir á stofnvísitölu kynþroska loðnu.
Lokaráðgjöf um aflamark er gefin út af Hafrannsóknastofnuninni í janúar/febrúar og byggir á stofnvísitölu kynþroska loðnu.
Bráðabirgðakvótinn byggist á einfaldri spá sem byggir á línulegu sambandi milli sögulegra mælinga á fjölda ungloðnu úr haustrannsóknum og samsvarandi lokaaflamarks um það bil 1 1/2 ári síðar. Út frá þessari reglu er gefin ráðgjöf um bráðabirgðakvóta fyrir veiðitímabilið 2024/25.
Milli og loka aflamark eru ákveðin með því að tryggja að 95% líkur séu á að a.m.k. 114 000 tonn af kynþroska loðnu verði til staðar við hrygningu 15. mars. Þetta var fyrst gert árið 2015/2016 af Hafrannsóknastofnuninni en var ekki metið af ICES.
Áætluð hrygningarstofnstærð (SSB) á hrygningartímanum (mars-apríl) hefur verið endurreiknuð fyrir árin 1981-2025 (Mynd 14 og tbl-predtab1), með líkaninu sem var tekið upp 2015 og 2024. Þetta tekur mið af óvissu í bergmálsmælingum og beitir afránslíkani sem var tekið upp árið 2015. Óvissan í bergmálsmælingum var endurreiknuð fyrir árin 2002-2006 og 2012-2014 með því að endurreikna bergmálsvísitölur og beita endursýnatöku (bootstrapping). Fyrir tímabilið frá 2015 hefur óvissan verið tiltæk þar sem ráðgjöf hefur verið veitt út frá nýju nýtingarstjórnunarkerfi. Fyrir fyrri ár var óvissan í bergmálsmælingum áætluð með því að skoða rannsóknaskýrslur sem og texta frá Hjálmari Vilhjálmssyni (1994). Áætlað var að óvissutölurnar (CV) væru á bilinu 0,15-0,25 og voru þær innifaldar sem margfaldari í lognormal dreifingu yfir meðalgildi frá sömu heimildum.
Þessar aðferðir voru staðfestar af rýnifundinum WKICE árið 2015 og WKCAPELIN 2022 með minniháttar breytingum. Sjá WKICE (ICES, 2015), WKCAPELIN (ICES, 2023b) og stofnviðauka fyrir loðnu á svæðinu Ísland-Austur Grænland-Jan Mayen. Áður (frá upphafi níunda áratugarins) var veiðum stýrt þannig að 400 000 tonn voru skilin eftir til hrygningar (án þess að taka tillit til óvissu í matinu). Til að spá fyrir um aflamark næsta fiskveiðitímabils var þróað líkan snemma á tíunda áratugnum (Guðmundsdóttir og Vilhjálmsson, 2002). Þessi líkön voru ekki staðfest af rýnifundinum WKSHORT 2009.
Viðmiðunarmörk
Á WKICE fundinum voru varúðamörk, Blim, skilgreind sem 150 000 tonn (ICES, 2015), en eftir WKCAPELIN var \(B_{lim}\) breytt í 114 000 tonn. Engin önnur viðmiðunarmörk eru skilgreind fyrir þennan stofn.
Staða stofnsins
Lífmassi hrygningarstofnsins (SSB) var metinn 318 000 tonn í október 2024, og 278 000 tonn í janúar og febrúar 2025. Afránslíkan (ICES, 2015), sem tekur mið af veiðum (í þessu tilfelli vetrarveiði upp á 8 589 tonn) og afráni milli mælinga og hrygningar af þorski, ufsa og ýsu, áætlaði að 180 000 tonn yrðu eftir til hrygningar vorið 2025. Með tilliti til óvissumatsins voru minni en 95% líkur á að að minnsta kosti 114 000 tonn væru eftir til hrygningar. Þetta var undir \(B_{lim}\) innan sjálfbærrar aflareglu. Bergmálsmæling á ókynþroska loðnu úr haustleiðangri í september 2024 var 58,5 milljarðar. Upphafleg ráðgjöf samkvæmt aflareglunni fyrir loðnuvertíðina 2025/26 verður gefin af ICES í júní 2025.
Óvissa í mati og framreikningum
Óvissa í mati og framreikningum er háð gæðum bergmálsmælingam, m.t.t. yfirferðar, skilyrða til mælinga og dreifingar loðnunnar (blettótt dreifing leiðir til hás breytileikastuðuls, jafndreifð hins gagnstæða).
Óvissan er áætluð með slembivalshermunum með endurísetningu (sjá WKICE). CV fyrir mat óþroska hluta stofnsins var áætlaður 0,15 en CV hrygningarstofns var 0,25 í haustmælingunni 2024. Í tveimur vetrarmælingum í janúar (fyrir svæðið austan Kolbeinseyjarhryggs) og febrúar (fyrir vestursvæðið) sem notaðar voru til mats á 2025 var það 0,36 og 0,33.
Þó að haustmæling 2024 hafi verið háð tímatakmörkunum virðist hafa náðst að ná utan um dreifingu bæði ókynþroska og kynþroska hluta stofsins. Lokamat á stærð hrygningarstofns loðnu var byggt á samantekt haustmælingar og tveggja vetrarmælinga í janúar og febrúar. Stærð hrygningarstofns var metin talsvert minni í vetrarmælingum 2025 en haustið 2024.
Þó að lokamat hrygningar- og veiðistofns að vetri hafið verið fe gið með samantekt tveggja leiðangra sem fóru fram með næstum mánaðar millibili er ekki litið svo á að það hafi aukið stofnmatsóvissu. Ástæðan er sú, að teknu tilliti til gönguatferlist loðnustofnsins, er næsta víst að kynþroska loðna sem var mæld fyrir Austulandi í janúar var ekki mælda að nýju í febrúar. Ennfremur þær yfirferðir sem voru lagðar til grundvallar lokamati voru þær heildstæðustu af öllum leiðangrum veturinn 2024/2025.
Í þessum leiðöngrum er líklegt að mismunandi loðnudreifingar hafi verið mældar ýmist með eða á móti göngustefnu, það getur valdið bjögun og óvissu í niðurstöðum sem erfitt getur verið að leggja mat á.
Samanburður við fyrra mat
Fyrir fiskveiðiárið 2024/2025 var hvorki ráðlagt upphafsaflamark né aflamark að hausti, að loknum vetrarmælingum 2025 var lagt til að afli yrði ekki meiri en 8589 t.
Stjórnun fiskveiða
Loðnuvertíðin hefur frá árinu 1975 byrjað á tímabilinu frá lokum júní til júlí/ágúst þegar rannsóknir á ungloðnu árið áður hafa leitt til þess að upphaflegt (bráðabirgða) aflamark er sett. Á sumrin er aðgengi að dýrasvifi í hámarki og loðnustofninn nærist á stórum svæðum milli Íslands, Grænlands og Jan Mayen, og vex þá hratt í lengd, þyngd og fitumagni. Í lok september/byrjun október lýkur þessu hraða vaxtarskeiði. Vöxturinn er hraðastur fyrstu tvö árin, en þyngdaraukningin er mest árið fyrir hrygningu (Vilhjálmsson, 1994).
Með hliðsjón af mikilli þyngdaraukningu á sumrin fyrir hrygningu er líklegt að kynþroska fiskur verði með meiri lífmassa að hausti en að sumri, jafnvel þó náttúruleg dánartíðni sé ekki vel þekkt á þessu tímabili. Þetta ætti að hafa í huga varðandi besta tímann til veiða með tilliti til aflaverðmætis og vistfræðilegra áhrifa. Þetta er einnig stutt af upplýsingum um loðnu í Barentshafi þar sem sýnt hefur verið fram á að veiðar á haustin myndu hámarka aflann, en frá vistfræðilegu sjónarmiði væri vetrarveiði æskilegri (Gjøsæter o.fl., 2002). Þar sem líffræði og hlutverk þessara tveggja loðnustofna í vistkerfinu eru svipuð, er talið að þetta eigi einnig við um loðnu á Íslandi, Austur-Grænlandi og Jan Mayen - þar til þessi stofn hefur verið rannsakaður nánar.
Í haustrannsóknum finnst oft ungloðna og fullorðin loðna saman. Þetta ætti að hafa í huga við sumar- og haustveiðar þar sem ekki er vitað um lifunartíðni ungloðnu sem sleppur í gegnum trollnetin.
Áhrif á vistkerfið
Loðna er undirstöðufæðutegund fyrir marga helstu nytjastofna við Ísland og búast má við að ef breyting verður á útbreiðslu hennar, þá hafi það áhrif á framleiðni afræningja.
Mikilvægi loðnu við Austur-Grænland er ekki vel skjalfest en átak hefur verið aukið til muna í haustmælingum til að meta hlutverk loðnu í lífríkinu, t.d. með rannsóknum á áti loðnu, mati á bráðaframboði, útbreiðslu afræningja og umhverfisvöktun.
Á Íslandsmiðum er loðnan helsta einstaka fæðutegundin í fæðu þorsks, en hún er einnig lykil bráð nokkurra tegunda sjávarspendýra og sjófugla og einnig er hún mikilvæg sem fæða fyrir nokkrar aðrar nytjafisktegundir (sjá t.d. Vilhjálmsson, 2002, Singh o.fl.. 2023).
Reglugerðir og áhrif þeirra
Í gegnum árin hefur veiði verið lokuð í apríl–lok júní og vertíðin hefur hafist í júlí/ágúst eða síðar, allt eftir ástandi stofnsins.
Svæði þar sem mikið er um ungviði 1 og 2 ára (á landgrunnssvæðinu við NV-, N- og NA-Ísland) hefur yfirleitt verið lokað fyrir sumar- og haustveiði.
Heimilt er að flytja afla úr nót eins skips yfir á annað skip, til að forðast brottkast. Ef aflinn er umfram burðargetu skipsins og ekkert annað skip er í nánd er þó leyfilegt að kasta umfram afla. Undanfarin ár hefur slík brottkast ekki verið algengt. Vinnslutogarar hafa ekki leyfi til að henda loðnu til að samræma afla við vinnsluna.
Á Íslandsmiðum eru veiðar með uppsjávartroll eingöngu leyfðar á takmörkuðu svæði undan NA-ströndinni (veiðar í janúar) til að vernda ungloðnu og til að draga úr hættu á að hafa áhrif á hrygningargönguleiðina.
Sem varúðarráðstöfun til að vernda ungloðnu hafa strandríkin (Ísland, Grænland og Noregur) samþykkt að frá og með 2021 skuli veiðar ekki hefjast fyrr en 15. október.
Heimildaskrá
Anon. 2015. Agreed Record of Conclusions of Coastal State consultations on the management of the capelin stock in the Iceland–East Greenland–Jan Mayen area. Reykjavík, Iceland. 7–8 May 2015. https://www.regjeringen.no/contentassets/37b66bdf33d84e99924bb27553641719/samledokument-lodde-mai-2015—agreed-records—bilateral-avtale.pdf. Last accessed: 17 November 2022.
Bardarson, B, Heilman, L, Jonsson, SÞ and Jansen, T 2024. Cruise report of acoustic assessment of the Iceland-East Greenland-Jan Mayen capelin stock in the autumn 2024. Kver Hafrannsóknastofnunar. KV2024-10. 18 pp.
Bardarson, B, Gudnason, K, Singh, W, Petursdottir, H, & Jonsson, SÞ (2021). Loðna (Mallotus villosus). Haf- Og Vatnarannsoknir, HV 2021(14), 31–34.
Christiansen, JS, Præbel, K, Siikavuopio, SI, Carscadden, JE 2008. Facultative semelparity in capelin Mallotus villosus (Osmeridae)-an experimental test of a life history phenomenon in a sub-arctic fish, Journal of Experimental Marine Biology and Ecology, Volume 360, Issue 1, 2008, Pages 47-55, ISSN 0022-0981, https://doi.org/10.1016/j.jembe.2008.04.003.
Engilbertsson, V, Óskarsson, GJ and Marteinsdóttir, G (2012). Inter-annual Variation in Fat Content of the Icelandic Capelin. ICES CM 2013/N:26.
Gjøsæter, H, Bogstad, B, and Tjelmeland, S 2002. Assessment methodology for Barents Sea capelin, Mallotus villosus (Müller). – ICES Journal of Marine Science, 59: 1086–1095.
Gudmundsdottir, A, and Vilhjalmsson, H 2002. Predicting Total Allowable Catches for Icelandic capelin, 1978–2001. ICES Journal of Marine Science, 59: 1105–1115.
Gudmundsdottir, A, and Sigurdsson, Th 2014. Growth of capelin in the Iceland-East Greenland-Jan Mayen area. NWWG 2014/WD:29.
ICES. 2015. Report of the Benchmark Workshop on Icelandic Stocks (WKICE), 26-30 January, 2015. ICES Headquarters. ICES CM 2015/ACOM:31.
ICES. 2023. Benchmark workshop on capelin (WKCAPELIN). ICES Scientific Reports. 5:62. 282 pp. https://doi.org/ices.pub.23260388
ICES 2024. Capelin (Mallotus villosus) in subareas 5 and 14 and Division 2.a west of 5°W (Iceland and Faroes grounds, East Greenland, Jan Mayen area). ICES Advice: Recurrent Advice. Report. https://doi.org/10.17895/ices.advice.25663980.v1
Jansen, T, Hansen, FT, Bardarson, B 2021. Larval drift dynamics, thermal conditions and the shift in juvenile capelin distribution and recruitment success around Iceland and East Greenland. Fisheries Research 236.
Hafrannsóknastofnun. 2024. ’Astand nytjastofna sjávar og ráðgjöf 2024,ráðgjöf um loðna. Hafrannsóknastofnun, 11 October 2024.
Singh, W, Ólafsdóttir, AH, Jónsson, SÞ, Óskarsson, GJ 2023. Capelin in a changing environment. Haf- og vatnarannsóknir, HV 2023-43. https://www.hafogvatn.is/static/research/files/capelin_2023_eng.pdf
Vilhjalmsson, H 1994. The Icelandic capelin stock. Capelin, Mallotus villosus (Müller), in the Iceland– Greenland–Jan Mayen area. Rit Fiskideildar, 13: 281 pp.
Vilhjálmsson, H 2002. Capelin (Mallotus villosus) in the Iceland–East Greenland–Jan Mayen ecosystem.ICES Journal of Marine Science: Journal du Conseil, 59: 870–883.
Vilhjálmsson, H 2007. Impact of changes in natural conditions on ocean resources. Law, science and ocean management 11, 225.
Töflur
| Lengd | aldur1 | aldur2 | aldur3 | aldur4 | Heildarfjöldi | Heildarlífmassi (tonn) |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 8.5 | 732 | 0 | 0 | 0 | 732 | 1551 |
| 9 | 2506 | 0 | 0 | 0 | 2506 | 6651 |
| 9.5 | 6544 | 0 | 0 | 0 | 6544 | 21177 |
| 10 | 10263 | 0 | 0 | 0 | 10263 | 38412 |
| 10.5 | 10947 | 0 | 0 | 0 | 10947 | 47360 |
| 11 | 7424 | 0 | 0 | 0 | 7424 | 36682 |
| 11.5 | 5555 | 0 | 0 | 0 | 5555 | 32184 |
| 12 | 5990 | 0 | 0 | 0 | 5990 | 39622 |
| 12.5 | 2834 | 138 | 0 | 0 | 2972 | 22260 |
| 13 | 2203 | 130 | 0 | 0 | 2334 | 19963 |
| 13.5 | 1381 | 310 | 0 | 0 | 1691 | 16254 |
| 14 | 891 | 785 | 49 | 0 | 1725 | 18679 |
| 14.5 | 457 | 1043 | 89 | 0 | 1589 | 20307 |
| 15 | 0 | 1727 | 0 | 0 | 1727 | 24940 |
| 15.5 | 49 | 1678 | 49 | 0 | 1776 | 28316 |
| 16 | 0 | 1513 | 81 | 0 | 1594 | 28871 |
| 16.5 | 0 | 2269 | 81 | 0 | 2350 | 46868 |
| 17 | 0 | 1955 | 191 | 0 | 2146 | 47007 |
| 17.5 | 0 | 1805 | 127 | 130 | 2063 | 50780 |
| 18 | 0 | 1107 | 127 | 32 | 1266 | 33371 |
| 18.5 | 0 | 640 | 64 | 64 | 768 | 22299 |
| 19 | 0 | 255 | 49 | 32 | 336 | 10505 |
| 19.5 | 0 | 127 | 64 | 99 | 290 | 8857 |
| 20 | 0 | 0 | 49 | 0 | 49 | 1809 |
| Lengd | aldur2 | aldur3 | aldur4 | aldur5 | Heildarfjöldi | Heildarlífmassi (tonn) |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 8.5 | 74 | 5 | 0 | 0 | 80 | 160 |
| 9 | 398 | 0 | 0 | 0 | 398 | 1001 |
| 9.5 | 339 | 0 | 0 | 0 | 339 | 1075 |
| 10 | 673 | 0 | 0 | 0 | 673 | 2372 |
| 10.5 | 1021 | 0 | 0 | 0 | 1021 | 4127 |
| 11 | 1416 | 0 | 0 | 0 | 1416 | 6798 |
| 11.5 | 1195 | 0 | 0 | 0 | 1195 | 6705 |
| 12 | 1943 | 3 | 0 | 0 | 1946 | 12325 |
| 12.5 | 1118 | 33 | 0 | 0 | 1151 | 8507 |
| 13 | 969 | 3 | 33 | 0 | 1005 | 8304 |
| 13.5 | 882 | 78 | 0 | 0 | 960 | 9036 |
| 14 | 461 | 230 | 0 | 0 | 691 | 7575 |
| 14.5 | 235 | 429 | 0 | 0 | 664 | 8327 |
| 15 | 237 | 642 | 42 | 0 | 921 | 12796 |
| 15.5 | 38 | 945 | 0 | 0 | 983 | 15715 |
| 16 | 13 | 983 | 22 | 0 | 1018 | 18346 |
| 16.5 | 73 | 1467 | 35 | 0 | 1574 | 31573 |
| 17 | 0 | 1508 | 211 | 0 | 1718 | 38842 |
| 17.5 | 0 | 1061 | 177 | 0 | 1238 | 31362 |
| 18 | 0 | 1261 | 165 | 0 | 1427 | 39999 |
| 18.5 | 0 | 815 | 69 | 46 | 930 | 28600 |
| 19 | 0 | 373 | 6 | 0 | 380 | 12314 |
| 19.5 | 0 | 108 | 13 | 0 | 120 | 3969 |
| 20 | 0 | 28 | 3 | 0 | 31 | 1159 |
| Lengd | aldur2 | aldur3 | aldur4 | Heildarfjöldi | Heildarlífmassi (tonn) |
|---|---|---|---|---|---|
| 8.5 | 13 | 0 | 0 | 13 | 21 |
| 9 | 13 | 0 | 0 | 13 | 23 |
| 9.5 | 38 | 0 | 0 | 38 | 102 |
| 10 | 128 | 0 | 0 | 128 | 382 |
| 10.5 | 192 | 0 | 0 | 192 | 677 |
| 11 | 244 | 0 | 0 | 244 | 1002 |
| 11.5 | 349 | 0 | 0 | 349 | 1696 |
| 12 | 467 | 0 | 0 | 467 | 2609 |
| 12.5 | 634 | 13 | 0 | 647 | 4152 |
| 13 | 490 | 0 | 0 | 490 | 3565 |
| 13.5 | 560 | 28 | 0 | 588 | 4917 |
| 14 | 275 | 87 | 0 | 362 | 3637 |
| 14.5 | 190 | 105 | 0 | 295 | 3325 |
| 15 | 270 | 129 | 8 | 406 | 5323 |
| 15.5 | 172 | 216 | 23 | 411 | 6008 |
| 16 | 69 | 450 | 36 | 555 | 9077 |
| 16.5 | 72 | 583 | 23 | 679 | 12219 |
| 17 | 72 | 519 | 64 | 655 | 13051 |
| 17.5 | 8 | 581 | 90 | 679 | 15411 |
| 18 | 13 | 352 | 46 | 411 | 10525 |
| 18.5 | 0 | 383 | 39 | 422 | 11707 |
| 19 | 0 | 175 | 23 | 198 | 6043 |
| 19.5 | 0 | 129 | 15 | 144 | 4822 |
| 20 | 0 | 67 | 15 | 82 | 2945 |