Loðna Mallotus villosus

Ráðgjöf 2025/2026(2)

43 766

tonn

Ráðgjöf 2025/2026(1)

46 384

tonn

Breyting á ráðgjöf

-6 %

Athugasemd: Þessi ráðgjöf verður endurskoðuð veturinn 2026

Birting ráðgjafar: 10. oktober 2025. Útgefið af Hafrannsóknastofnun.


Ráðgjöf

Hafrannsóknastofnun og ICES leggja til, í samræmi við aflareglu strandríkja, að afli fiskveiðiárið 2025/2026 verði ekki meiri en 43 766 tonn.

Stofnþróun

Hrygningarstofn árið 2026 er yfir varúðarmörkunum Blim; ekki hafa verið skilgreind viðmiðunarmörk fiskveiðidánartölu fyrir stofninn.

Loðna. Afli, vísitala ókynþroska loðnu samkvæmt bergmálsmælingum að hausti og stærð hrygningarstofns á hrygningartíma (ásamt 90 % öryggismörkum).

Stofnmat og viðmiðunarmörk

Forsendur ráðgjafar

Aflaregla samþykkt af strandríkjunum

Aflaregla

Sjá útlistun á aflareglu hér fyrir neðan

Stofnmat

Stofnvísitölur byggðar á bergmálsmælingum

Inntaksgögn upphafsráðgjafar

Vísitölur ungloðnu úr bergmálsleiðöngrum hausti.

Inntaksgögn milliráðgjafar

Vísitölur kynþroska loðnu úr bergmálsleiðöngrum hausti.

Inntaksgögn lokaráðgjafar

Vísitölur kynþroska loðnu úr bergmálsleiðöngrum vetri.

Nálgun

Viðmiðunarmörk

Gildi

Grundvöllur

Aflaregla

Bmgt

114 000

Skilgreint í samræmi við samþykkta aflareglu (ICES 2023b), í tonnum

Utrigger

50

Skilgreint til tryggja lága líkur á upphaflegt TAC ráð leggist yfir endanlegt TAC (ICES 2015), í milljörðum

Cap

127

Skilgreint til tryggja lágar líkur á upphafsaflamark verði hærra en lokaaflamark (ICES 2015), í milljörðum

Varúðarnálgun

Blim

114 000

Meðalstærð þriggja lítilla hrygninga sem skiluðu meðalnýliðun (ICES 2023a)

Horfur

Ísland, Grænland og Noregur komust að samkomulagi (Anon, 2015; Anon, 2023) um að nota eftirfarandi aflareglu sem grundvöll fiskveiðistjórnunar, byggt á reglu sem var þróuð og yfirfarin hjá ICES (ICES, 2015; ICES, 2023a).

Markmið aflareglunnar er að setja lokaaflamark sem tryggir með 95 % líkum að eftir standi að lágmarki 114 þúsund tonn til hrygningar. Til þess að þetta náist er farið til bergmálsmælinga á tímabilinu frá september til febrúar og rágjöf um aflamark gefin í þremur skrefum: sem upphafsaflamark, milliaflamark og lokaaflamark.

  1. Upphafsráðgjöf fyrir næsta fiskveðiár er gefin byggt á mati á stærð ókynþroska hluta stofnsins (Uimm) að loknum bergmálsmælingum að hausti (september-október).

    Tveir fastar eru ákveðnir:

    1. Utrigger = 50 milljarðar ókynþroska loðnu.

    2. TACMax = 400 þús. tonn þegar U > 127 milljarðar ókynþroska.

    Aðferðin við að setja upphafs/bráðabirgðaaflamark er:

    • TAC = 0 ef Uimm < 50 milljarðar.

    • TAC = 5.2 x (Uimm - Utrigger) þús. tonn fyrir Uimm á bilinu 50–127 milljarðar.

    • TAC = 400 þús. tonn fyrir Uimm > 127 milljarðar.

  2. Milliráðgjöf fyrir yfirstandandi fiskveðiár er gefin að loknum bergmálsmælingum að hausti. Stærð kynþroska hluta stofnsins (hrygningarstofn) er metin með óvissu og lögð við gögn um spáða stærð og dreifingu afræningja, og notuð sem upphafsgildi í afránslíkanakeyrslum sem gera ráð fyrir mismiklum veiðum fram að hrygningu í mars. Milliráðgjöf um aflamark er sett sem 2/3 af þeim afla sem gæfi p(SSB < Blim) = 114 þús. tonn) < 0.05.

  3. Lokaráðgjöf er gefin að loknum bergmálsmælingum að vetrarlagi (janúar-febrúar). Stærð hrygningastofns er metin með óvissu og lögð við gögn um spáða stærð og dreifingu afræningja. Lokaaflamark byggir á öllum bergmælsmælingaleiðöngrum frá hausti að vetri. Niðurstöðurnar eru notaðar sem upphafsgildi í afránslíkanakeyrslum sem gera ráð fyrir mismiklum veiðum fram að hrygningu í mars. Lokaráðgjöf um aflamark er sett sem sá afli sem gæfi p(SSB < Blim) = 114 þús. tonn) < 0.05.

Loðna. Forsendur fyrir stofnmatsárið og í framreikningum.

Breyta

Gildi

Athugasemdir

Afli (2025/2026) fram mælingu

Ekkert upphafsaflamark ráðlagt

Veiðistofn (2026)

408 314

Stofnmæling skv. haustmælingu, í tonnum.

Stærð þorskstofns (2026)

783 106

Inntak í afránslíkani, í tonnum

Stærð ýsustofns (2026)

260 989

Inntak í afránslíkani, í tonnum

Stærð ufsastofns (2026)

298 002

Inntak í afránslíkani, í tonnum

Loðna. Áætluð þróun stærðar hrygningarstofns (tonn) miðað við veiðar samkvæmt aflareglu.

Grunnur

Afli (2025/2026)

Hrygningarstofn (2026)1)

% Breyting á ráðgjöf2)

Aflaregla

43 766

230 861

-6

1) Hrygningarstofn 15. mars 2026

2) Ráðlagt aflamark fyrir 2025/2026(2) miðað við ráðlagt aflamark 2025/2026 (1) (46384 t)

Niðurstöður bergmálsmælinga á stærð kynþroskahluta stofnsins í september 2025 og að teknu tiliti til niðurstaðna afránslíkansins voru að með afla upp á 65 650 tonn næðust markmið aflareglunnar um að skilja eftir að lágmarki 114 þúsund tonn til hrygningar með 95 % líkum. Milliráðgjöf miðast við 2/3 af þeim afla, eða 43 766 tonn.

Upphafsráðgjöf fyrir 2025/2026 er hærri en núll því vísitala kynþroska loðnu er hærri en Blim.

Gæði stofnmats

Yfirferð í haustleiðangri 2025 er talin fullnægjandi til að gefa áreiðanlegt mat á fjölda í kynþroska hluta stofnsins. Loðnan var nokkuð jafndreifð á svæðinu og mæling kynþroska hluta hennar hafði lágan fráviksstuðul (CV=0.2).

Óvissa tengd kvörðun 18 kHz mælis rannsóknaskipsins Tarjaoq olli erfiðleikum við að greina á milli núllgrúppu og ókynþroska loðnu sem veldur óvissu í mati á fjölda eins og tveggja ára. Þessi óvissa á ekki við í sama mæli um mat á kynþroska hluta stofnsins.

Aðrar upplýsingar

ICES er aðeins ætlað að skila upphafsráðgjöf sem byggir á því að litlar líkur séu á að ráðgjöf um upphafsaflamark verði hærri en lokaráðgjöf (ICES, 2015). Hafrannsóknastofnun mun uppfæra ráðgjöf um aflamark í kjölfar mælinga í janúar–febrúar 2026; sú ráðgjöf verður lokaráðgjöf um aflamark fyrir vertíðina 2025/2026.

Tímamörkum loðnuvertíðar var breytt árið 2021 með samkomulagi strandríkja, úr 20. júní–15. apríl í 15. október–15. apríl.

Ráðgjöf, aflamark og afli

Loðna. Tillögur um hámarksafla, ákvörðun stjórnvalda um aflamark og afli.

Fiskveiðiár

Upphafstillaga

Lokatillaga

Lokaflamark

Afli alls

1986/1987

1 100 000

1 290 000

1 334 000

1987/1988

500 000

1 115 000

1 117 000

1988/1989

900 000

1 065 000

1 036 000

1989/1990

900 000

900 000

808 000

1990/1991

600 000

250 000

313 000

1991/1992

0

740 000

677 000

1992/1993

500 000

900 000

788 000

1993/1994

900 000

1 250 000

1 179 000

1994/1995

950 000

850 000

864 000

1995/1996

800 000

1 390 000

926 000

1996/1997

1 100 000

1 600 000

1 569 000

1997/1998

850 000

1 265 000

1 245 000

1998/1999

950 000

1 200 000

1 100 000

1999/2000

866 000

1 000 000

1 000 000

931 000

2000/2001

650 000

1 110 000

1 090 000

1 070 000

2001/2002

700 000

1 300 000

1 300 000

1 249 000

2002/2003

690 000

1 000 000

1 000 000

989 000

2003/2004

555 000

875 000

900 000

743 000

2004/2005

335 000

985 000

985 000

784 000

2005/2006

0

238 000

235 000

247 000

2006/2007

0

385 000

385 000

377 000

2007/2008

207 000

207 000

207 000

203 000

2008/2009

0

0

0

15 000

2009/2010

0

150 000

150 000

151 000

2010/2011

0

390 000

390 000

391 000

2011/2012

366 000

765 000

765 000

748 000

2012/2013

0

570 000

570 000

551 000

2013/2014

0

160 000

160 000

142 000

2014/2015

225 000

580 000

580 000

517 000

2015/2016

53 600

173 000

173 000

173 500

2016/2017

0

299 000

299 000

297 732

2017/2018

0

285 000

285 000

287 000

2018/2019

0

0

0

0

2019/2020

0

0

0

0

2020/2021

169 520

127 300

127 300

128 647

2021/2022

400 000

869 600

869 600

689 200

2022/2023

400 000

459 800

459 800

330 051

2023/2024

0

0

0

0

2024/2025

0

8 589

8 589

9 439

2025/2026

46 384

Heimildir og ítarefni

Anon. 2015. Agreed Record of Conclusions of Coastal State consultations on the management of the capelin stock in the Iceland–East Greenland–Jan Mayen area. 2015. Reykjavík, Iceland. 7–8 May 2015. https://www.regjeringen.no/contentassets/37b66bdf33d84e99924bb27553641719/samledokument-lodde-mai-2015---agreed-records---bilateral-avtale.pdf Last accessed: 31 May 2025.

Anon. 2023. Framework arrangement between Greenland and Iceland on the conservation and management of capelin. Reykjávik, Iceland 3 July 2023. 4 pp. https://www.althingi.is/altext/pdf/154/fylgiskjol/s1655-f_I.pdf Last accessed: 31 May 2025.

ICES. 2015. Report of the Benchmark Workshop of Icelandic Stocks (WKICE), 26-30 January 2015, ICES Headquarters, Copenhangen, Denmark. ICES CM 2015/ACOM:31. 335 pp. https://doi.org/10.17895/ices.pub.5295

ICES. 2023. Benchmark workshop on capelin (WKCAPELIN). ICES Scientific Reports. 5:62. 282 pp. https://doi.org/10.17895/ices.pub.23260388

Stofnmatsskýrslur Hafrannsóknastofnunar 2025. Loðna. Hafrannsóknastofnun, 6. júní 2025.