SÍLD Clupea harengus
Birting ráðgjafar: 12. júní 2026. Útgefið af Hafrannsóknastofnun.
Ráðgjöf
Hafrannsóknastofnun og Alþjóðahafrannsóknaráðið leggja til, í samræmi við aflareglu íslenskra stjórnvalda, að afli árið 2026 verði ekki meiri en 80 307 tonn.
Stofnþróun
Veiðihlutfall íslenskrar sumargotssíldar er yfir veiðihlutfalli aflareglu (HRMGT) en undir kjörsókn (HRMSY) og gátmörkum (HRpa). Stærð hrygningarstofns er yfir aðgerðarmörkum (MGT Btrigger), gátmörkum (Bpa) og varúðarmörkum (Blim).
Síld. Afli eftir veiðarfærum, nýliðun, veiðihlutfall viðmiðunarstofns, stærð viðmiðunarstofns (4 ára og eldri) og hrygningarstofns.
Stofnmat og Gátmörk
Forsendur ráðgjafar | Aflaregla |
Aflaregla | Aflamark sett sem 19 % af viðmiðunarstofni (lífmassi 4 ára og eldri) |
Stofnmat | Tölfræðilegt aldurs-aflalíkan |
Inntaksgögn | Aldursgreindur afli og aldursgreindar fjöldavísitölur úr bergmálsleiðöngrum |
Nálgun | Viðmiðunarmörk | Gildi | Grundvöllur |
|---|---|---|---|
Aflaregla | MGT Btrigger | 273 000 | Aflaregla |
HRMGT | 0.19 | Aflaregla | |
Hámarksafrakstur | MSY Btrigger | 234 000 | Bpa |
HRMSY | 0.22 | Slembireikningar í aflaregluhermun. | |
Varúðarnálgun | Blim | 200 000 | Metið út frá sambandi hrygningarstofns og nýliðunar |
Bpa | 273 000 | Bpa = Blim × exp(1.645 × σ), σ = 0.19 | |
HRpa | 0.25 | Nýtingarhlutfall sem leiðir til to P (SSB > Blim) > 95% með MSY Btrigger |
Horfur
Atvinnuvegaráðuneytið hefur sett aflareglu fyrir síld, sem var uppfærð árið 2024. Samkvæmt aflareglunni er aflamark komandi árs, ákvarðað á eftirfarandi hátt:
\[ TAC_Y = HR_{MGT} \times B_{4+,Y} \quad \text{if } SSB_Y \geq{MGT}\;B_{trigger} \]
\[ TAC_Y = HR_{MGT} \times \left(\frac{SSB_Y}{{MGT}\;B_{trigger}}\right) \times B_{4+,Y} \quad \text{if } SSB_Y < {MGT}\;B_{trigger} \]
þar sem aðgerðarmörk (MGT Btrigger) eru skilgreind sem 273 000 tonn af hrygningarstofni, B4+,y er stærð viðmiðunarstofns (lífmassi 4 ára og eldri) í upphafi stofnmatsárs og veiðihlutfall aflareglu (HRMGT) er 0.19. Árið 2025 breyttu íslensk stjórnvöld fiskveiðiárinu fyrir þennan stofn í almanaksár (áður 1. september úttektarárið Y og lauk 31. ágúst ráðgjafarárið Y+1).
Síld. Forsendur fyrir stofnmatsárið og í framreikningum.
Breyta | Gildi | Athugasemdir |
|---|---|---|
Afli (2025) | 104 591 | Afli frá júní 2025 til apríl 2026; í tonnum. |
HR (2025) | 0.21 | Veiðihlutfall byggt á lönduðum afla |
Nýliðun 2 ára (2026) | 894 213 | Mat úr líkani; í þúsundum |
B4+ (2026) | 422 668 | Mat úr líkan (1. janúar 2026) |
Hrygningarstofn (2026) | 409 080 | Skammtímaspá; í tonnum |
Síld. Áætluð þróun á stærð viðmiðunarstofns og hrygningarstofns miðað við veiðar samkvæmt aflareglu. Allar þyngdir eru í tonnum.
Grunnur | Afli (2026) | Veiðihlutfall (2026) | Hrygningarstofn (2027)1) | Viðmiðunarstofn 4+ (2027) | % Breyting á hrygningarstofni2) | % Breyting á ráðgjöf3) |
|---|---|---|---|---|---|---|
Aflaregla | 80 307 | 0.19 | 423 579 | 439 380 | 3.5 | -22.31 |
1) Hrygningarstofn 1. júlí 2027 | ||||||
2) Hrygningarstofn árið 2027 miðað við hrygningarstofn 2026 | ||||||
3) Ráðlagt aflamark fyrir 2026 miðað við ráðlagt aflamark 2025/2026 (103367) | ||||||
Ráðlagt aflamark fyrir árið 2026 lækkar vegna þess að viðmiðunarstofninn (B4+) er nú metinn minni en í síðustu úttekt og hann minnkar þar sem lítill árgangur er að ganga inn í hann.
Gæði stofnmats
Stofnmatið er í samræmi við mat fyrra árs. Vandamál tengd bergmálsmælingum árin 2024-2025 leiða til aukinnar óvissu í stofnmati.
Síld. Núverandi stofnmat (rauð lína) borið saman við stofnmat áranna 2022–2025. Gátmörk og stofnmat var endurskoðað árið 2024.`
Aðrar upplýsingar
Áður var þessi ráðgjöf veitt fyrir íslenska fiskveiðiárið (1. september – 31. ágúst). Í kjölfar breytinga á reglugerð frá atvinnuvegaráðuneytinu er ráðgjöfin í ár veitt fyrir almanaksárið 2026 (Stjórnarráð Íslands, 2026). Þessi breyting endurspeglar veiðihætti betur og hefur engin áhrif á framsetningu ráðgjafarinnar.
Sýking af völdum frumdýrsins Ichthyophonus er enn viðvarandi í stofninum en tíðni hennar er minni. Gert er ráð fyrir áhrifum sýkingarinnar í bæði stofnmati og aflareglu.
Ráðgjöf, aflamark afli
Síld. Tillögur um hámarksafla, ákvörðun stjórnvalda um aflamark og afli (tonn). Afli sýnir summu vetrarvertíðar og sumarveiði fiskveiðársins á undan.
Fiskveiðiár | Tillaga | Aflamark | Afli alls |
|---|---|---|---|
1984 | 50 000 | 50 000 | |
1985 | 50 000 | 50 000 | |
1986 | 65 000 | 65 000 | |
1987 | 70 000 | 72 900 | |
1988 | 100 000 | 90 000 | |
1989 | 95 000 | 90 000 | |
1990/1991 | 90 000 | 100 000 | |
1991/1992 | 79 000 | 110 000 | |
1992/1993 | 86 000 | 110 000 | 16 047 |
1993/1994 | 110 000 | 110 000 | 103 524 |
1994/1995 | 83 000 | 130 000 | 132 774 |
1995/1996 | 120 000 | 110 000 | 125 341 |
1996/1997 | 97 000 | 110 000 | 95 994 |
1997/1998 | 90 000 | 100 000 | 64 464 |
1998/1999 | 90 000 | 90 000 | 87 203 |
1999/2000 | 100 000 | 100 000 | 93 323 |
2000/2001 | 110 000 | 110 000 | 101 031 |
2001/2002 | 125 000 | 125 000 | 97 572 |
2002/2003 | 113 000 | 105 000 | 96 128 |
2003/2004 | 113 000 | 110 000 | 125 719 |
2004/2005 | 106 000 | 110 000 | 114 237 |
2005/2006 | 110 000 | 110 000 | 103 032 |
2006/2007 | 110 000 | 130 000 | 135 313 |
2007/2008 | 117 000 | 150 000 | 160 744 |
2008/2009 | 131 000 | 130 000 | 153 238 |
2009/2010 | 75 000 | 40 000 | 48 442 |
2010/2011 | 40 000 | 40 000 | 44 735 |
2011/2012 | 40 000 | 45 000 | 49 756 |
2012/2013 | 67 000 | 68 500 | 74 503 |
2013/2014 | 87 000 | 87 000 | 73 521 |
2014/2015 | 83 000 | 83 000 | 93 209 |
2015/2016 | 71 000 | 71 000 | 69 839 |
2016/2017 | 63 000 | 63 000 | 61 161 |
2017/2018 | 38 712 | 39 000 | 36 005 |
2018/2019 | 35 186 | 35 186 | 40 968 |
2019/2020 | 34 572 | 34 572 | 32 536 |
2020/2021 | 35 490 | 35 490 | 28 301 |
2021/2022 | 72 239 | 72 239 | 70 805 |
2022/2023 | 66 195 | 66 195 | 79 202 |
2023/2024 | 92 633 | 92 633 | 87 194 |
2024/2025 | 81 367 | 81 367 | 84 055 |
2025/2026 | 103 367 | 103 367 | |
2026 | 80 307 |
Heimildir og ítarefni
Stjórnarráð Íslands (2026). Management strategy and harvest control rules. Retrieved May 29, 2026, from https://www.government.is/topics/business-and-industry/fisheries-in-iceland/management-strategy-and-harvest-control-rules/
Stofnmatsskýrslur Hafrannsóknastofnunar 2026. Síld. Hafrannsóknastofnun, 12. júní 2026.