Sandkoli Limanda limanda

Ráðgjöf 2025/2026

253

tonn

Ráðgjöf 2024/2025

361

tonn

Breyting á ráðgjöf

-30 %

Athugasemd: Ráðgjöfin gildir líka fyrir fiskveiðiárið 2026/2027

Birting ráðgjafar: 6. júní 2025. Útgefið af Hafrannsóknastofnun.


Ráðgjöf

Hafrannsóknastofnun leggur til, í samræmi við nýtingarstefnu sem mun leiða til hámarksafraksturs til lengri tíma litið (MSY), að afli hvors fiskveiðiárs 2025/2026 og 2026/2027 verði ekki meiri en 253 tonn.

Stofnþróun

Stofnstærð er við aðgerðarmörk (Itrigger) og veiðiálag er undir kjörsókn (FMSY proxy).

Sandkoli. Afli, nýliðunarvísitala (<21cm) úr SMB, vísitala veiðihlutfalls og lífmassavísitala (≥25 cm) úr SMB. Nýliðunarvísitala: öryggisbil sýna 95% öryggismörk. Lífmassavísitala: rauðar láréttar línur sýna meðallífmassavísitölur fyrir árin 2021–2023 og 2024–2025 sem eru notaðar við útreikninga ráðgjafar, skyggð svæði sýnir 95% öryggismörk.

Stofnmat og gátmörk

Forsendur ráðgjafar

Hámarksafrakstur

Aflaregla

Ekki hefur verið sett aflaregla fyrir þennan stofn

Stofnmat

Byggt á tímaháðum breytingum í stofnmælingum

Inntaksgögn

Afli og vísitölur úr stofnmælingu botnfiska að vori (SMB)

Nálgun

Viðmiðunarmörk

Gildi

Grundvöllur

Hámarksafrakstur

Itrigger

1 540

Iloss×1.4, Iloss er skilgreint sem lægsta sögulega gildið í SMB

FMSY_proxy

1

Hlutfallslegt gildi úr LBI greiningu, þar sem gert er ráð fyrir M/K = 1.5

Lc

26

Lengd við fyrsta veiði, 50% af tíðasta gildi

LInf

47

Hámarkslengd tegundar

K

0.3

Vaxtarhraði stofns

LF=M

31.25

0.75 x Lc + 0.25 x LInf

Horfur

Grunnur ráðgjafar fylgir forskrift Alþjóðahafrannsóknaráðsins fyrir stofna þar sem ekki er hægt að framkvæma tölfræðilegt stofnmat en til eru vísitölur sem taldar eru gefa mynd af breytingum í stofnstærð (Category 3 stocks; ICES, 2025). Lífmassavísitala fyrir sandkola 25 cm og stærri úr SMB er notuð til að reikna tímaháða breytingu á stofnvísitölu. Þar sem upplýsingar um lífssögulega þætti eru til staðar auk nægjanlegra lengdarmælingagagna úr afla er ráðgjöfin byggð á svokallaðri rfb-reglu Alþjóðahafrannsóknaráðsins, sem gildir fyrir hvort fiskveiðiár 2025/2026 og 2026/2027.

Sandkoli. Útreikningur ráðgjafar.

Ay: Ráðgjöf fyrir 2024/2025

361

Breytingar í stofni

Vísitala A (2024-2025)

1 871

Vísitala B (2021-2023)

3 133

r: Hlutfall vísitölu (A/B)

0.597

Vísitala veiðihlutfalls

Meðallengd í afla(Lmean = L2024)

33

Lengd við kjörsókn (LF=M)

31

f: Vísitala veiðihlutfalls (LF=M/Lmean)

0.934

Gátmörk

Vísitala seinasta árs (I2025)

1 595

Aðgerðarmörk vísitölu (Itrigger=Iloss*1.4)

1 540

b: Vísitala í hlutfalli við aðgerðamörk, min{I2025/Itrigger, 1}

1

Varúðarlækkun til þess tryggja hrygningarstofn fari ekki undir gátmörk (Blim) með 95 % líkum

m: Margfaldari (byggður á lífssögu)

0.9

Reiknuð ráðgjöf1)

208

Sveiflujöfnun (+20 % / -30 % borið saman við Ay, aðeins beitt ef b>1)2)

1

Ráðgjöf fyrir 2025/2026 og 2026/2027

253

% breyting á ráðgjöf3)

-30

1) Ay × r × 1/f × b × m

2) min{max(0.7Ay, Ay+1), 1.2Ay}

3) Tölur í töflu eru námundaðar. Útreikningar eru gerðir með ónámunduðum tölum og því gætu reiknuð gildi ekki stemmt

Ráðlagt aflamark fyrir komandi fiskveiðiár lækkar vegna þess vísitala stofnstærðar hefur lækkað.

Gæði stofnmats – quality of the assessment

Stofnmæling botnfiska á Íslandsmiðum (SMB) er ekki talin veita nægilega góðar upplýsingar um nýliðun sandkola þar sem ungfiskur heldur sig að hluta grynnra en stöðvanetið nær til.

Aðrar upplýsingar

Vísitala veiðistofns sandkola hefur verið lág um langt skeið og er við aðgerðarmörk í ár. Nýliðun hefur verið léleg frá árinu 2015 og mikil óvissa ríkir um styrk árganga. Þá eru einnig vísbendingar um ofveiði á sandkolastofninum. Þessir þættir gefa sterkar vísbendingar um að stofninn sé í hnignun eða jafnvel hruninn.

Ráðgjöf, aflamark og afli

Sandkoli. Tillögur um hámarksafla, ákvörðun stjórnvalda um aflamark og afli (tonn).

Fiskveiðiár

Tillaga

Aflamark

Afli alls

1995/1996

7  000

6  792

1996/1997

7  000

8  283

1997/1998

7  000

7  000

6  363

1998/1999

7  000

7  000

4  507

1999/2000

7  000

7  000

3  165

2000/2001

4  000

5  500

2  938

2001/2002

4  000

4  000

4  183

2002/2003

7  000

7  000

4  657

2003/2004

7  000

7  000

3  991

2004/2005

5  000

5  000

2  881

2005/2006

2  500

4  000

1  373

2006/2007

1  000

2  000

1  014

2007/2008

500

1  500

710

2008/2009

500

1  000

811

2009/2010

500

1  000

719

2010/2011

500

900

814

2011/2012

500

900

891

2012/2013

500

800

772

2013/2014

500

500

593

2014/2015

1  000

1  000

546

2015/2016

500

500

443

2016/2017

500

500

208

2017/2018

500

500

399

2018/2019

500

500

451

2019/2020

399

399

436

2020/2021

319

319

587

2021/2022

313

313

716

2022/2023

301

301

750

2023/2024

361

361

724

2024/2025

361

361

2025/2026

253

2026/2027

253

Heimildir og ítarefni

ICES. 2025. ICES Guidelines - Advice rules for stocks in category 2 and 3. Version 3. ICES Guidelines and Policies - Advice Technical Guidelines. 31 pp. https://doi.org/10.17895/ices.pub.28506179

Stofnmatsskýrslur Hafrannsóknastofnunar 2025. Sandkoli. Hafrannsóknastofnun, 6. júní 2025.