Stórkjafta Lepidorhombus whiffiagonis

Ráðgjöf 2025/2026

110

tonn

Ráðgjöf 2024/2025

92

tonn

Breyting á ráðgjöf

20 %

Athugasemd: Ráðgjöfin gildir líka fyrir fiskveiðiárið 2026/2027

Birting ráðgjafar: 6. júní 2025. Útgefið af Hafrannsóknastofnun.


Ráðgjöf

Hafrannsóknastofnun leggur til, í samræmi við nýtingarstefnu sem mun leiða til hámarksafraksturs til lengri tíma litið (MSY), að afli hvors fiskveiðiárs 2025/2026 og 2026/2027 verði ekki meiri en 110 tonn.

Stofnþróun

Stofnstærð er yfir aðgerðarmörkum (Itrigger) og veiðiálag er undir kjörsókn (FMSY proxy).

Stórkjafta. Afli eftir veiðarfærum, nýliðunarvísitala (<20cm) úr SMB, vísitala veiðihlutfalls og lífmassavísitala (≥30 cm) úr SMB. Nýliðunarvísitala: öryggisbil sýna 95 % öryggismörk. Lífmassavísitala: rauðar láréttar línur sýna meðallífmassavísitölur fyrir árin 2021–2023 og 2024–2025 sem eru notaðar við útreikninga ráðgjafar, skyggð svæði sýnir 95 % öryggismörk.

Stofnmat og gátmörk

Forsendur ráðgjafar

Hámarksafrakstur

Aflaregla

Ekki hefur verið sett aflaregla fyrir þennan stofn

Stofnmat

Byggt á tímaháðum breytingum í stofnmælingum

Inntaksgögn

Afli og vísitölur úr stofnmælingu botnfiska að vori (SMB)

Nálgun

Viðmiðunarmörk

Gildi

Grundvöllur

Hámarksafrakstur

Itrigger

167

Iloss×1.4, Iloss er skilgreint sem lægsta sögulega gildið í SMB

FMSY_proxy

1

Hlutfallslegt gildi úr LBI greiningu, þar sem gert er ráð fyrir M/K = 1.5

Lc

43

Lengd við fyrsta veiði, 50% af tíðasta gildi

LInf

62

Hámarkslengd tegundar

K

0.19

Vaxtarhraði stofns

LF=M

47.75

0.75 x Lc + 0.25 x LInf

Grunnur ráðgjafar fylgir forskrift Alþjóðahafrannsóknaráðsins fyrir stofna þar sem ekki er hægt að framkvæma tölfræðilegt stofnmat en til eru vísitölur sem taldar eru gefa mynd af breytingum í stofnstærð (Category 3 stocks; ICES, 2025). Lífmassavísitala fyrir stórkjöftu 40 cm og stærri úr SMB er notuð til að reikna tímaháða breytingu á stofnvísitölu. Þar sem upplýsingar um lífssögulega þætti eru til staðar auk nægjanlegra lengdarmælingagagna úr afla er ráðgjöfin byggð á svokallaðri rfb-reglu Alþjóðahafrannsóknaráðsins, sem gildir fyrir hvort fiskveiðiár 2025/2026 og 2026/2027.

Horfur

Stórkjafta Útreikningur ráðgjafar.

Ay: Ráðgjöf fyrir 2024/2025

92

Breytingar í stofni

Vísitala A (2024-2025)

473

Vísitala B (2021-2023)

324

r: Hlutfall vísitölu (A/B)

1.462

Vísitala veiðihlutfalls

Meðallengd í afla(Lmean = L2024)

56

Lengd við kjörsókn (LF=M)

48

f: Vísitala veiðihlutfalls (LF=M/Lmean)

0.854

Gátmörk

Vísitala seinasta árs (I2025)

563

Aðgerðarmörk vísitölu (Itrigger=Iloss*1.4)

167

b: Vísitala í hlutfalli við aðgerðamörk, min{I2025/Itrigger, 1}

1

Varúðarlækkun til þess tryggja hrygningarstofn fari ekki undir gátmörk (Blim) með 95 % líkum

m: Margfaldari (byggður á lífssögu)

0.95

Reiknuð ráðgjöf1)

150

Sveiflujöfnun (+20 % / -30 % borið saman við Ay, aðeins beitt ef b>1)2)

1

Ráðgjöf fyrir 2025/2026 og 2026/2027

110

% breyting á ráðgjöf3)

20

1) Ay × r × 1/f × b × m

2) min{max(0.7Ay, Ay+1), 1.2Ay}

3) Tölur í töflu eru námundaðar. Útreikningar eru gerðir með ónámunduðum tölum og því gætu reiknuð gildi ekki stemmt

Ráðlagt aflamark hvors fiskveiðiárs 2025/2026 og 2026/2027 hækkar vegna þess að vísitala stofnstærðar hefur hækkað.

Gæði stofnmats

Stofnmæling botnfiska á Íslandsmiðum (SMB) er talin ná yfir útbreiðslusvæði stofnsins.

Aðrar upplýsingar

Nýliðun í SMB árið 2025 mældist sú hæsta síðan mælingar hófust árið 2025. Þó er gert ráð fyrir að stofninn muni vera í lágmarki næstu ár vegna lélegrar nýliðunar árin 2012–2023.

Ráðgjöf, aflamark og afli

Stórkjafta. Tillögur um hámarksafla, ákvörðun stjórnvalda um aflamark og afli (tonn).

Fiskveiðiár

Tillaga

Aflamark

Afli alls

2010/2011

270

2011/2012

429

2012/2013

380

2013/2014

369

2014/2015

429

2015/2016

498

2016/2017

467

2017/2018

387

2018/2019

341

2019/2020

289

2020/2021

194

2021/2022

206

86

2022/2023

132

91

2023/2024

92

48

2024/2025

92

2025/2026

110

2026/2027

110

Heimildir og ítarefni

ICES. 2025. ICES Guidelines - Advice rules for stocks in category 2 and 3. Version 3. ICES Guidelines and Policies - Advice Technical Guidelines. 31 pp. https://doi.org/10.17895/ices.pub.28506179

MFRI Assessment Reports 2025. Megrim. Marine and Freshwater Research Institute, 6 June 2025.

Stofnmatsskýrslur Hafrannsóknastofnunar 2025. Stórkjafta. Hafrannsóknastofnun, 6. júní 2025.