Langlúra Glyptocephalus cynoglossus

Ráðgjöf 2025/2026

1 659

tonn

Ráðgjöf 2024/2025

1 476

tonn

Breyting á ráðgjöf

12 %

Athugasemd: Ráðgjöfin gildir líka fyrir fiskveiðiárið 2026/2027

Birting ráðgjafar: 6. júní 2025. Útgefið af Hafrannsóknastofnun.


Ráðgjöf

Hafrannsóknastofnun leggur til, í samræmi við nýtingarstefnu sem mun leiða til hámarksafraksturs til lengri tíma litið (MSY), að afli hvors fiskveiðiárs 2025/2026 og 2026/2027 verði ekki meiri en 1 659 tonn.

Stofnþróun

Stofnstærð er yfir aðgerðarmörkum (Itrigger) og veiðiálag er undir kjörsókn (FMSY proxy).

Langlúra. Afli, nýliðunarvísitala (<25cm) úr SMB, vísitala veiðihlutfalls og lífmassavísitala (≥30 cm) úr SMB. Nýliðunarvísitala: öryggisbil sýna 95% öryggismörk. Lífmassavísitala: rauðar láréttar línur sýna meðallífmassavísitölur fyrir árin 2021–2023 og 2024–2025 sem eru notaðar við útreikninga ráðgjafar, skyggð svæði sýnir 95% öryggismörk.

Stofnmat og gátmörk

Forsendur ráðgjafar

Hámarksafrakstur

Aflaregla

Ekki hefur verið sett aflaregla fyrir þennan stofn

Stofnmat

Byggt á tímaháðum breytingum í stofnmælingum

Inntaksgögn

Afli og vísitölur úr stofnmælingu botnfiska að vori (SMB)

Nálgun

Viðmiðunarmörk

Gildi

Grundvöllur

Hámarksafrakstur

Itrigger

1 182

Iloss×1.4, Iloss er skilgreint sem lægsta sögulega gildið í SMB

FMSY_proxy

1

Hlutfallslegt gildi úr LBI greiningu, þar sem gert er ráð fyrir M/K = 1.5

Lc

33

Lengd við fyrsta veiði, 50% af tíðasta gildi

LInf

60

Hámarkslengd tegundar

K

0.15

Vaxtarhraði stofns

LF=M

39.75

0.75 x Lc + 0.25 x LInf

Horfur

Grunnur ráðgjafar fylgir forskrift Alþjóðahafrannsóknaráðsins fyrir stofna þar sem ekki er hægt að framkvæma tölfræðilegt stofnmat en til eru vísitölur sem taldar eru gefa mynd af breytingum í stofnstærð (Category 3 stocks; ICES, 2025). Lífmassavísitala fyrir langlúru 30 cm og stærri úr SMB er notuð til að reikna tímaháða breytingu á stofnvísitölu. Þar sem upplýsingar um lífssögulega þætti eru til staðar auk nægjanlegra lengdarmælingagagna úr afla er ráðgjöfin byggð á svokallaðri rfb-reglu Alþjóðahafrannsóknaráðsins, sem gildir fyrir hvort fiskveiðiár 2025/2026 og 2026/2027.

Langlúra Útreikningur ráðgjafar.

Ay: Ráðgjöf fyrir 2024/2025

1 476

Breytingar í stofni

Vísitala A (2024-2025)

3 323

Vísitala B (2021-2023)

3 180

r: Hlutfall vísitölu (A/B)

1.045

Vísitala veiðihlutfalls

Meðallengd í afla(Lmean = L2024)

45

Lengd við kjörsókn (LF=M)

40

f: Vísitala veiðihlutfalls (LF=M/Lmean)

0.883

Gátmörk

Vísitala seinasta árs (I2025)

3 939

Aðgerðarmörk vísitölu (Itrigger=Iloss*1.4)

1 182

b: Vísitala í hlutfalli við aðgerðamörk, min{I2025/Itrigger, 1}

1

Varúðarlækkun til þess tryggja hrygningarstofn fari ekki undir gátmörk (Blim) með 95 % líkum

m: Margfaldari (byggður á lífssögu)

0.95

Reiknuð ráðgjöf1)

1 659

Sveiflujöfnun (+20 % / -30 % borið saman við Ay, aðeins beitt ef b>1)2)

0

Ráðgjöf fyrir 2025/2026 og 2026/2027

1 659

% breyting á ráðgjöf3)

12

1) Ay × r × 1/f × b × m

2) min{max(0.7Ay, Ay+1), 1.2Ay}

3) Tölur í töflu eru námundaðar. Útreikningar eru gerðir með ónámunduðum tölum og því gætu reiknuð gildi ekki stemmt

Ráðlagt aflamark hvors fiskveiðiárs 2025/2026 og 2026/2027 hækkar vegna þess vísitala stofnstærðar hefur hækkað.

Gæði stofnmats

Stofnmæling botnfiska á Íslandsmiðum (SMB) nær yfir allt veiðisvæði langlúru. Sveiflur á vísitölum geta verið miklar frá ári til árs.

Aðrar upplýsingar

Nýliðun langlúru var léleg árin 2012-2020 en hefur aukist undanfarin ár.

Ráðgjöf, aflamark og afli

Langlúra. Tillögur um hámarksafla, ákvörðun stjórnvalda um aflamark og afli (tonn).

Fiskveiðiár

Tillaga

Aflamark

Afli alls

1994/1995

1  500

1  642

1995/1996

1  400

1  699

1996/1997

1  200

1  200

1  300

1997/1998

1  100

1  100

995

1998/1999

1  100

100

1  176

1999/2000

1  100

1  100

1  117

2000/2001

1  100

1  100

1  166

2001/2002

1  350

1  350

1  225

2002/2003

1  500

1  500

1  534

2003/2004

1  500

1  500

2  000

2004/2005

2  000

2  000

2  246

2005/2006

2  200

2  400

2  190

2006/2007

2  000

2  400

2  197

2007/2008

2  000

2  400

1  543

2008/2009

1  600

2  200

1  707

2009/2010

1  600

2  200

1  296

2010/2011

1  300

1  300

1  222

2011/2012

1  100

1  300

1  452

2012/2013

1  100

1  100

1  183

2013/2014

1  100

1  100

1  168

2014/2015

1  100

1  100

1  225

2015/2016

1  100

1  100

1  148

2016/2017

1  110

1  110

1  088

2017/2018

1  116

1  116

885

2018/2019

1  100

1  100

844

2019/2020

1  067

1  067

940

2020/2021

854

854

733

2021/2022

1  025

1  025

603

2022/2023

1  230

1  230

632

2023/2024

1  476

1  476

622

2024/2025

1  476

1  476

2025/2026

1  659

2026/2027

1  659

Heimildir og ítarefni

ICES. 2025. ICES Guidelines - Advice rules for stocks in category 2 and 3. Version 3. ICES Guidelines and Policies - Advice Technical Guidelines. 31 pp. https://doi.org/10.17895/ices.pub.28506179

Stofnmatsskýrslur Hafrannsóknastofnunar 2025. Sandkoli. Hafrannsóknastofnun, 6. júní 2025.