LÚÐA Hippoglossus hippoglossus

Ráðgjöf 2025/2026

0

tonn

Ráðgjöf 2024/2025

0

tonn

Breyting á ráðgjöf

0 %

Athugasemd: Hafrannsóknastofnun leggur til áframhaldandi bann við beinni sókn og að reglugerð til verndunar lúðu verði áfram í gildi.

Birting ráðgjafar: 6. júní 2025. Útgefið af Hafrannsóknastofnun.


Ráðgjöf

Hafrannsóknastofnun leggur til að áfram verði í gildi reglugerð nr. 470/2012 sem bannar allar beinar veiðar á lúðu í fiskveiðilandhelgi Íslands, og kveður jafnframt á um að allri lífvænlegri lúðu sem kemur um borð í veiðiskip skuli sleppt.

Stofnþróun

Hafrannsóknastofnun getur ekki metið stöðu stofnsins og veiðiálag m.t.t. aðgerðarmarka hámarksafraksturs (MSY) og varúðarnálgunar (PA) þar sem viðmiðunarmörk hafa ekki verið skilgreind.

Lúða. Afli eftir veiðarfærum, nýliðunarvísitala (<30 cm) og lífmassavísitala (>40 cm). Skyggð svæði og öryggisbil sýna 95 % öryggismörk.

Horfur

Lúða sem veiðist í SMB er að stærstum hluta 3–5 ára ókynþroska fiskur. Þessir aldurshópar hafa verið í lægð í þrjá áratugi og bendir það til að viðkomubrestur hafi orðið í stofninum. Þetta ástand er orðið svo langvinnt að fyrirsjáanlegt er að stofninn muni vera í lægð í fyrirsjáanlegri framtíð.

Gæði stofnmats

SMB nær einungis yfir veiðisvæði ókynþroska lúðu, en litlar upplýsingar eru til um kynþroska hluta stofnsins. Breytingar á vísitölum eru yfirleitt litlar frá ári til árs og mæliskekkja lítil.

Aðrar upplýsingar

Vegna bágs ástands lúðustofnsins setti ráðherra sjávarútvegsmála á fót starfshóp árið 2010 um aðgerðir til verndar stofninum. Var niðurstaða hópsins að áhrifaríkasta leiðin væri að banna beinar veiðar. Í framhaldinu hafði Hafrannsóknastofnun samráð við reynda skipstjórnarmenn varðandi frekari aðgerðir til verndar lúðustofninum. Niðurstaðan var að leggja til bann við beinum veiðum og sleppa lúðu við veiðar þar sem það væri tæknilega mögulegt, enda er lúðan talin lifa af þá meðferð. Í samræmi við tillögur Hafrannsóknastofnunar gaf Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið út reglugerð sem tók gildi árið 2012.

Ráðgjöf, aflamark afli

Lúða. Tillögur um hámarksafla, ákvörðun stjórnvalda um aflamark og afli (tonn).

Fiskveiðiár

Tillaga

Aflamark

Afli alls

2010/2011

Bann við beinum veiðum

595

2011/2012

Bann við beinum veiðum

186

2012/2013

Bann við beinum veiðum

38

2013/2014

Bann við beinum veiðum

49

2014/2015

Bann við beinum veiðum

50

2015/2016

Bann við beinum veiðum

113

2016/2017

Bann við beinum veiðum

112

2017/2018

Bann við beinum veiðum

133

2018/2019

Bann við beinum veiðum

124

2019/2020

Bann við beinum veiðum

141

2020/2021

Bann við beinum veiðum

143

2021/2022

Bann við beinum veiðum

175

2022/2023

Bann við beinum veiðum

200

2023/2024

Bann við beinum veiðum

182

2024/2025

Bann við beinum veiðum

2025/2026

Bann við beinum veiðum

Heimildir og ítarefni

Stofnmatsskýrslur Hafrannsóknastofnunar 2025. Lúða. Hafrannsóknastofnun, 6. júní 2025.

Reglugerð um veiðar á lúðu. https://www.reglugerd.is/reglugerdir/allar/nr/0470-2012.