TINDASKATA Amblyraja radiata

Ráðgjöf 2026/2027

758

tonn

Ráðgjöf 2025/2026

837

tonn

Breyting á ráðgjöf

-9 %

Birting ráðgjafar: 12. júní 2026. Útgefið af Hafrannsóknastofnun.


Ráðgjöf

Hafrannsóknastofnun leggur til, í samræmi við nýtingarstefnu sem mun leiða til hámarksafraksturs til lengri tíma litið (MSY), að afli fiskveiðiárið 2026/2027 verði ekki meiri en 758 tonn.

Stofnþróun

Veiðiálag er undir varúðarmörkum (Flim) og kjörsókn (FMSY). Stærð stofnsins er yfir aðgerðarmörkum (Btrigger) og varúðarmörkum (Blim).

Tindaskata. Afli, hlutfallslegar breytingar á veiðistofni (B/BMSY) og hlutfallsleg veiðidánartala (F/FMSY). Skyggð svæði sýna 95% öryggismörk.

Stofnmat og gátmörk

Forsendur ráðgjafar

Kjörsókn (FMSY).

Aflaregla

Ekki hefur verið sett aflaregla fyrir þennan stofn.

Stofnmat

Afraksturslíkan byggt á löndunum og stofnvísitölum.

Inntaksgögn

Afli og vísitölur úr stofnmælingu botnfiska vori (SMB).

Nálgun

Viðmiðunarmörk

Gildi

Grundvöllur

Hámarksafrakstur

MSY Btrigger

0.5

Hlutfall af BMSY þar sem afrakstur er 50% af MSY

FMSY

1

Fiskveiðidánarstuðlar skilgreindir sem hlutfall af FMSY

Varúðarnálgun

Blim

0.3

Hlutfall af BMSY þar sem afrakstur er 50% af MSY

Flim

1.7

Fiskveiðidánartala sem jafnaði gefur Blim

Horfur

Tindaskata Forsendur fyrir stofnmatsárið og í framreikningum.

Breyta

Gildi

Athugasemdir

Áætlaður afli (2026)

211.75

Skammtímaspá afla undir Fsq; í tonnum

Stofnstærð B2027/BMSY (2027)

1.07

Skammtímaspá við óbreytta veiðidánartölu (Fsq)

Fiskveiðidauði F2025/FMSY (2026)

0.25

Óbreytt veiðidánartala, Fsq (F2025/FMSY)

Tindaskata. Áætluð þróun stofnstærðar (tonn) miðað við veiðar samkvæmt ráðgjafarreglu.

Grunnur

Afli (2026/2027)

Fiskveiðidánartala (2027)

Stofnstærð (2028)

% Breyting á lífmassa1)

% Breyting á ráðgjöf2)

Hámarksafrakstur; FMSY

758

0.254

1.11

4

-9

1) Stofnstærð árið 2028 miðað við stofnstærð 2027

2) Ráðlagt aflamark fyrir 2027/2026 miðað við ráðlagt aflamark 2026/2025 (837 t)

Lækkun ráðgjafar skýrist af því að núverandi stofnmat metur stofnstærð lægri en fyrra stofnmat.

Gæði stofnmats

Stofnmat var uppfært árið 2023 og byggir nú á tölfræðilegu afraksturslíkani (SPiCT). Inntaksgögn í stofnmatslíkanið eru heildarafli ár hvert og vísitölur úr stofnmælingu að vori (SMB) sem nær yfir 90% af útbreiðslusvæði tindaskötu. Við uppfærslu stofnmatsins milli ára hefur líkanið endurmetið stofnstærð niður á við yfir tímabilið.

Tindaskata. Núverandi stofnmat (rauð lína) borið saman við stofnmat áranna 2023, 2024 og 2025.

Aðrar upplýsingar

Tindaskata er brjóskfiskur. Hún er talin vera hægvaxta og langlíf tegund og því mikilvægt að sókn sé takmörkuð. Tindaskötu er aðallega landað á haustin sem er líklega tengt aukinni eftirspurn á þeim árstíma. Talið er að brottkast sé nokkuð á öðrum árstímum en rannsóknir benda til að lifun sé há.

Ráðgjöf, aflamark og afli

Tindaskata. Tillögur um hámarksafla, ákvörðun stjórnvalda um aflamark og afli (tonn).

Fiskveiðiár

Tillaga

Aflamark

Afli alls

2020/2021

988

899

2021/2022

921

484

2022/2023

1  105

287

2023/2024

822

204

2024/2025

818

215

2025/2026

837

2026/2027

758

Heimildir og ítarefni

Pedersen, M. W., & Berg, C. W. (2017). A stochastic surplus production model in continuous time. Fish and Fisheries18(2), 226-243.

ICES. 2022. ICES technical guidance for harvest control rules and stock assessments for stocks in categories 2 and 3. In Report of ICES Advisory Committee, 2022. ICES Advice 2022, Section 16.4.11. https://doi.org/10.17895/ices.advice.19801564

Stofnmatsskýrslur Hafrannsóknastofnunar 2026. Tindaskata. Hafrannsóknastofnun, 12. júní 2026.