Hrefna Balaenoptera acutorostrata
Birting ráðgjafar: 22. april 2026. Útgefið af Hafrannsóknastofnun.
Ráðgjöf
Hafrannsóknastofnun og vísindanefnd Norður-Atlantshafs-sjávarspendýraráðsins (NAMMCO) ráðleggja að þegar aflamarksreglu Alþjóðahvalveiðiráðsins sé beitt verði veiðar á hrefnu 2026 ekki meiri en 134 dýr á íslenska landgrunnssvæðinu. Þessi tala inniheldur ekki tilfærslur milli ára.
Þetta er ráðgjöf til eins árs (2026) og verður uppfærð síðar á árinu fyrir næstu ár þegar niðurstöður nýjustu talninga hafa verið samþykktar af úttektarhópum og nefndum innan NAMMCO.
Stofnþróun
Gátmörk fyrir fjölda hrefna hafa ekki verið skilgreind.
Hrefna. Veiði og fjöldi í talningum. Talningarnar frá 2024 eru birtar til bráðabirgða og með fyrirvara um breytingar.
Stofnmat og gátmörk
Forsendur ráðgjafar | Ráðgjafarregla Alþjóðahvalveiðiráðsins |
Aflaregla | Engin aflaregla hefur verið sett fyrir þennan stofn |
Inntaksgögn | Hvalatalningar og aflagögn |
Horfur
Ráðgjöfin byggir á aflamarksreglu Alþjóðahvalveiðiráðins (CLA, Huseby og Aldrin 2006), og árið 2023 var beiting þeirrar reglu rýnd af vísindanefnd Alþjóðahvalveiðiráðsins (IWC 2023). Beiting aflamarksreglunnar er talin varkár og samrýmast markmiðum um hámarksafrakstur. Ráðgjöfin fyrir hrefnu byggir á mati á fjölda hvala á hafsvæðinu við Ísland.
Vísindanefnd NAMMCO byggir ráðgjöf sína á því að halda stærð hrefnustofnsins við 60 % af upprunalegri stærð hans, þ.e. áður en veiðar hófust. Vísindanefnd Alþjóðahvalveiðiráðsins hefur, byggt á hermunum, ákvarðað að hlutfallið af upprunalegri stofnstærð til lengri tíma litið skuli vera milli 60 % og 72 % til þess að samræmast varúðarsjónarmiðum, og markmiðum um hámarksafrakstur.
Þar sem niðurstöður talninganna frá 2024 hafa ekki verið samþykktar af nefndum innan NAMMCO voru þær ekki notaðar við ákvörðun aflamarks. Vegna þess er ráðgjöfin lækkuð um 20 % í varúðarskyni.
| Grunnur | Hlutfall af hámarksstofnstærð | Heildarveiði |
|---|---|---|
| Aflamarksregla | 0.6 | 134 |
| Varkár aflamarksregla | 0.72 | 86 |
Gæði stofnmats
Síðasta hvalatalning fór fram árið 2024. Þoka og hafís hömluðu talningu á stóru svæði á hafsvæðinu milli Vestur-Íslands og Austur-Grænlands. Talning á öðrum svæðum gekk vel. Rýni á niðurstöðum talninga er ekki lokið.
Aðrar upplýsingar
Hrefnu fjölgaði á íslenska landgrunnssvæðinu fram að síðustu aldamótum en fækkaði síðan mikið. Niðurstöður úr talningum Norðmanna á hafsvæðinu fyrir norðan og austan okkar landhelgi benda til að um tilfærslu sé að ræða vegna breytinga í magni og útbreiðslu mikilvægra fæðutegunda eins og sandsílis og loðnu. Frumniðurstöður talninga árið 2024 sýna breytingar frá þessu ástandi og benda til töluverða aukningu fjölda hrefna á íslenska landgrunnsvæðinu.
Athugið að ráðgjöfin var leiðrétt 13. maí 2026.
Ráðgjöf, aflamark og afli
Hrefna. Ráðgjöf, aflamark og fjöldi veiddra hrefna.
Ár | Tillaga | Aflamark | Afli alls |
|---|---|---|---|
1977 | 320 | 194 | |
1978 | 200 | 198 | |
1979 | 200 | 198 | |
1980 | 200 | 202 | |
1981 | 200 | 201 | |
1982 | 200 | 212 | |
1983 | 212 | 204 | |
1984 | 182 | 178 | |
1985 | 147 | 145 | |
1986 | 80 | ||
1987 | 80 | ||
1988 | 80 | ||
1989 | 80 | ||
1990 | 0 | ||
1991 | 0 | ||
1992 | 0 | ||
1993 | 0 | ||
1994 | 0 | ||
1995 | 0 | ||
1996 | 0 | ||
1997 | 0 | ||
1998 | 250 | 250 | |
1999 | 250 | 250 | |
2000 | 250 | 250 | |
2001 | 250 | 250 | |
2002 | 250 | 250 | |
2003 | 250 | 250 | 37 |
2004 | 250 | 250 | 25 |
2005 | 250 | 250 | 39 |
2006 | 250 | 250 | 61 |
2007 | 250 | 250 | 45 |
2008 | 400 | 400 | 38 |
2009 | 100 | 100 | 81 |
2010 | 200 | 200 | 60 |
2011 | 216 | 216 | 58 |
2012 | 216 | 216 | 52 |
2013 | 229 | 229 | 35 |
2014 | 229 | 229 | 24 |
2015 | 229 | 229 | 29 |
2016 | 224 | 224 | 46 |
2017 | 224 | 224 | 17 |
2018 | 217 | 217 | 6 |
2019 | 217 | 217 | 0 |
2021 | 217 | 217 | 1 |
2022 | 217 | 217 | 0 |
2023 | 217 | 217 | 0 |
2024 | 217 | 217 | 0 |
2025 | 217 | 217 | 0 |
2026 | 134 |
Heimildir og ítarefni
Huseby RB, Aldrin M. 2006. Updated Documentation of a Fortran 77 Subroutine Implementing the Catch Limit Algorithm-Version January 2006.” NR-Note SAMBA/06/06, Norwegian Computing Center
IWC 2023. Annex L Report of the Sub‐Committee on Implementation Simulation Trials. Journal of Cetacean Research and Management. Volume 25 Supplement October 2023.
NAMMCO 2025. Report of the 32nd meeting of the Scientific Committee (NAMMCO/SC/32). NAMMCO-North Atlantic Marine Mammal Commission. Tromsø. Norway. 80 pp.https://nammco.no/wp-content/uploads/2026/02/report_sc32_2026.pdf