STEINBÍTUR Anarhichas lupus
Birting ráðgjafar: 12. júní 2026. Útgefið af Hafrannsóknastofnun.
Ráðgjöf
Hafrannsóknastofnun og Alþjóðahafrannsóknaráðið leggja til, í samræmi við aflareglu íslenskra stjórnvalda, að afli fiskveiðiárið 2026/2027 verði ekki meiri en 8 641 tonn. Auk þess leggur stofnunin til áframhaldandi friðun á hrygningarslóð steinbíts á Látragrunni yfir hrygningar- og klaktíma.
Stofnþróun
Veiðihlutfall stofnsins er yfir markmiðum aflareglu stjórnvalda (FMGT), kjösókn (FMSY) og gátmörkum (Fpa). Stærð hrygningarstofns er yfir aðgerðarmörkum (MGT Btrigger), gátmörkum (Bpa) og varúðarmörkum (Blim).
Steinbítur. Afli eftir veiðarfærum, nýliðun (4 ára), veiðidánartala 10–15 ára og stærð hrygningarstofns. Skyggð svæði og öryggisbil sýna 95 % öryggismörk.
Stofnmat og gátmörk
Forsendur ráðgjafar | Aflaregla |
Aflaregla | Ráðgjöf byggir á fiskveiðidánartölu FMGT = 0.20 fyrir 10–15 ára og er margfaldað með SSBy / MGT Btrigger þegar SSBy < MGT Btrigger |
Stofnmat | Tölfræðilegt aldurs-aflalíkan (SAM) |
Inntaksgögn | Aldursgreindur afli og aldursgreindar fjöldavísitölur úr stofnmælingum (IS-SMB, IS-SMH) |
Nálgun | Viðmiðunarmörk | Gildi | Grundvöllur |
|---|---|---|---|
Aflaregla | MGT Btrigger | 21 000 | Aflaregla |
FMGT | 0.2 | Aflaregla | |
Hámarksafrakstur | MSY Btrigger | 21 000 | Bpa |
FMSY | 0.2 | Takmarkað af Fpa, hæsta F þar sem líkur á að SSB fari niður fyrir Blim eru < 5%. | |
Varúðarnálgun | Blim | 18 500 | Bpa x e1.645 * σ þar sem σ = 0.07 |
Bpa | 21 000 | Bloss (Hrygningarstofn árið 2002) | |
Flim | 0.33 | Fiskveiðidauði sem í framreikningum leiðir til þess að miðgildi hrygningarstofns er við Blim | |
Fpa | 0.2 | Fp05, hámarks F þar sem líkur á því að SSB fari niður fyrir Blim eru < 5 % |
Horfur
Atvinnuvegaráðuneytið hefur sett aflareglu fyrir steinbít árið 2022. Samkvæmt aflareglunni er veiðidánaratala komandi fiskveiðiárs (FY/Y+1), sem hefst 1. september úttektarárið Y og líkur 31. ágúst ráðgjafarárið Y+1, ákvarðuð á eftirfarandi hátt:
\[ \text{F}_{Y⁄Y+1}=\text{min}\left(\frac{\text{SSB}_Y}{\text{MGT B}_{trigger}} ,1\right) \text{F}_{mgt} \]
Afli seinustu fjóra mánuði ársins Y (september til desember) er veiðidánartala ársins Y sett sem:
\[ \text{F}_Y=\frac{2}{3}\text{F}_{SQ} + \frac{1}{3}\text{F}_{mgt} \]
Fyrir árið Y+1 er F(Y⁄Y+1) is notað. Að lokum er aflamarkið (TACY⁄Y+1) reiknað á eftirfarandi hátt:
\[ \text{TAC}_{Y⁄Y+1}=\frac{1}{3}C[\text{F}_Y]+ \frac{2}{3} C[\text{F}_{Y/Y+1}] \]
þar sem aflinn (C[.]) er reiknaður samkvæmt aflajöfnu Baranovs byggt á tilsvarandi gildum á lífmassa, náttúrulegri dánartölu og veiðidánartölu hvert ár.
Steinbítur. Forsendur fyrir stofnmatsárið og í framreikningum.
Breyta | Gildi | Athugasemdir |
|---|---|---|
Afli (2026) | 8 639 | Byggt á F10–15 ára (2026); í tonnum. |
Hrygningarstofn (2027) | 33 495 | Skammtímaspá; í tonnum |
Nýliðun 4 ára (2027) | 13 340 | Meðaltal seinustu 10 ára stofnmatsins; í þúsundum |
Nýliðun 4 ára (2028) | 13 340 | Meðaltal seinustu 10 ára stofnmatsins; í þúsundum |
F10-15 ára (2026) | 0.21 | jan-ágú: gerir ráð fyrir óbreyttu F (meðaltal síðustu þriggja ára); sep-des: FMGT |
Steinbítur. Áætluð þróun á stærð hrygningarstofns miðað við veiðar samkvæmt aflareglu. Allar þyngdir eru í tonnum.
Grunnur | Afli (2026/2027) | Veiðidánartala (2026/2027) | Hrygningarstofn (2028) | % Breyting á hrygningarstofni1) | % Breyting á ráðgjöf2) |
|---|---|---|---|---|---|
Aflaregla | 8 641 | 0.2 | 34 704 | 4 | -8 |
1) Hrygningarstofn árið 2028 miðað við hrygningarstofn 2027 | |||||
2) Ráðlagt aflamark fyrir 2026/2027 miðað við ráðlagt aflamark 2025/2026 (9412 t) | |||||
Gæði stofnmats
Stofnmatið í ár metur hrygningarstofn og nýliðun lægri, og veiðidánartölu hærri en stofnmat fyrri ára.
Steinbítur. Núverandi stofnmat (rauð lína) borið saman við stofnmat áranna 2022–2025.
Aðrar upplýsingar
Hafrannsóknastofnun leggur til áframhaldandi friðun á hrygningarslóð steinbíts á Látragrunni yfir hrygningar- og klaktíma.
Ráðgjöf, aflamark og afli
Steinbítur. Tillögur um hámarksafla, ákvörðun stjórnvalda um aflamark og afli (tonn).
Fiskveiðiár | Tillaga | Aflamark | Afli alls |
|---|---|---|---|
1998/1999 | 13 000 | 13 000 | 13 139 |
1999/2000 | 13 000 | 13 000 | 14 913 |
2000/2001 | 13 000 | 13 000 | 18 083 |
2001/2002 | 13 000 | 16 100 | 13 681 |
2002/2003 | 15 000 | 15 000 | 16 943 |
2003/2004 | 15 000 | 15 000 | 13 255 |
2004/2005 | 13 000 | 16 000 | 14 201 |
2005/2006 | 13 000 | 13 000 | 16 461 |
2006/2007 | 12 000 | 13 000 | 15 817 |
2007/2008 | 11 000 | 12 500 | 15 098 |
2008/2009 | 12 000 | 13 000 | 15 429 |
2009/2010 | 10 000 | 12 000 | 13 091 |
2010/2011 | 8 500 | 12 000 | 12 078 |
2011/2012 | 7 500 | 10 500 | 10 582 |
2012/2013 | 7 500 | 8 500 | 8 940 |
2013/2014 | 7 500 | 7 500 | 7 530 |
2014/2015 | 7 500 | 7 500 | 7 862 |
2015/2016 | 8 200 | 8 200 | 8 982 |
2016/2017 | 8 811 | 8 811 | 7 542 |
2017/2018 | 8 540 | 8 540 | 9 553 |
2018/2019 | 9 020 | 9 020 | 9 355 |
2019/2020 | 8 344 | 8 344 | 7 166 |
2020/2021 | 8 761 | 8 761 | 8 974 |
2021/2022 | 8 933 | 8 933 | 8 562 |
2022/2023 | 8 1071) | 8 107 | 8 782 |
2023/2024 | 8 3441) | 8 344 | 9 286 |
2024/2025 | 9 3781) | 9 378 | 9 582 |
2025/2026 | 9 4121) | 9 412 | |
2026/2027 | 8 6411) | ||
1) FMGT = 0.2 | |||
Heimildir og ítarefni
ICES. 2022. Workshop on the evaluation of assessments and management plans for ling, tusk, plaice and Atlantic wolffish in Icelandic waters (WKICEMP). ICES Scientific Reports. 4:37. https://doi.org/10.17895/ices.pub.19663971
Stofnmatsskýrslur Hafrannsóknastofnunar 2026. Steinbítur. Hafrannsóknastofnun 12. júní 2026.