KEILA Brosme brosme
Birting ráðgjafar: 12. júní 2026. Útgefið af Hafrannsóknastofnun.
Ráðgjöf
Hafrannsóknastofnun og Alþjóðahafrannsóknaráðið leggja til, í samræmi við aflareglu íslenskra stjórnvalda, að afli fiskveiðiárið 2026/2027 verði ekki meiri en 9 018 tonn.
Stofnþróun
Veiðihlutfall er undir markmiðum aflareglu stjórnvalda (FMGT), kjörsókn (FMSY) og gátmörkum (FPA). Stærð hrygningarstofns er yfir aðgerðarmörkum (MGT Btrigger), gátmörkum (BPA) og varúðarmörkum (Blim).
Keila. Afli á Íslandsmiðum (Ísland og aðrar þjóðir) og við Grænland, nýliðun (1 árs), veiðidánartala 7-10 ára, og lífmassi hrygningarstofns. Skyggð svæði og öryggisbil sýna 95 % öryggismörk.
Stofnmat og gátmörk
Forsendur ráðgjafar | Aflaregla |
Aflaregla | Ráðgjöf byggir á fiskveiðidánartölu FMGT = 0.23 fyrir 7–10 ára og er margfaldað með SSBy / MGT Btrigger þegar SSBy < MGT Btrigger. Þegar aflareglunni er beitt má vænta þess að fiskveiðidánartala sveiflist milli 0.15 og 0.31. |
Stofnmat | Tölfræðilegt aldurs-aflalíkan (SAM) |
Inntaksgögn | Aldurs og lengdargögn úr afla og stofnmælingum (SMB, SMH og SMN) og heildarafli. |
Nálgun | Viðmiðunarmörk | Gildi | Grundvöllur |
|---|---|---|---|
Aflaregla | MGT Btrigger | 4 800 | Aflaregla |
FMGT | 0.23 | Aflaregla | |
Hámarksafrakstur | MSY Btrigger | 4 800 | Byggt á Bpa |
FMSY | 0.23 | Leiðir til hámarksafraksturs til lengri tíma, byggt á slembihermunum (EqSim). | |
Varúðarnálgun | Blim | 3 400 | Lægsta SSB gildið (2016) með háa nýliðun |
Bpa | 4 800 | Blim x e1.645×0.2 | |
Flim | 0.44 | Fiskveiðidauði sem í framreikningum leiðir til þess að miðgildi hrygningarstofns er við Blim | |
Fpa | 0.23 | Fp05, hámarks F þar sem líkur á því að SSB fari niður fyrir Blim eru < 5 % |
Horfur
Atvinnuvegaráðuneytið hefur sett aflareglu fyrir keilu, sem síðast var uppfærð árið 2022. Samkvæmt aflareglunni er veiðidánaratala komandi fiskveiðiárs (FY/Y+1), sem hefst 1. september úttektarárið Y og líkur 31. ágúst ráðgjafarárið Y+1, ákvarðuð á eftirfarandi hátt:
\[ \text{F}_{Y⁄Y+1}=\text{min}\left(\frac{\text{SSB}_Y}{\text{MGT B}_{trigger}} ,1\right) \text{F}_{MGT} \]
Afli seinustu fjóra mánuði ársins Y (september til desember) er veiðidánartala ársins Y sett sem:
\[ \text{F}_Y=\frac{2}{3}\text{F}_{SQ} + \frac{1}{3}\text{F}_{MGT} \]
Fyrir árið Y+1 er F(Y⁄Y+1) is notað. Að lokum er aflamarkið (TACY⁄Y+1) reiknað á eftirfarandi hátt:
\[ \text{TAC}_{Y⁄Y+1}=\frac{1}{3}C[\text{F}_Y]+ \frac{2}{3} C[\text{F}_{Y/Y+1}] \]
þar sem aflinn (C[.]) er reiknaður samkvæmt aflajöfnu Baranovs byggt á tilsvarandi gildum á lífmassa, náttúrulegri dánartölu og veiðidánartölu hvert ár.
Keila Forsendur fyrir stofnmatsárið og í framreikningum.
Breyta | Gildi | Athugasemdir |
|---|---|---|
F7-10 ára (2026) | 0.16 | jan-ágú: gerir ráð fyrir óbreyttu F (meðaltal síðustu þriggja ára); sep-des: FMGT |
Hrygningarstofn (2027) | 14 827 | Skammtímaspá; í tonnum |
Nýliðun 1 árs (2027) | 36 465 | Meðaltal seinustu 10 ára stofnmatsins; í þúsundum |
Nýliðun 1 árs (2028) | 36 465 | Meðaltal seinustu 10 ára stofnmatsins; í þúsundum |
Afli (2026) | 5 785 | Byggt á F7–10 ára (2026); í tonnum. |
Keila. Áætluð þróun stofnstærðar (tonn) miðað við veiðar samkvæmt aflareglu.
Grunnur | Afli (2026/2027) | Veiðidánartala (2026/2027) | Hrygningarstofn (2028) | % Breyting á hrygningarstofni1) | % Breyting á ráðgjöf2) |
|---|---|---|---|---|---|
Aflaregla | 9 018 | 0.23 | 14 956 | 1 | 21 |
1) Hrygningarstofn árið 2028 miðað við hrygningarstofn 2027 | |||||
2) Ráðlagt aflamark fyrir 2026/2027 miðað við ráðlagt aflamark 2025/2026 (7451 t) | |||||
Ráðgjöfin fyrir fiskveiðiárið 2026/2027 er hærri en ráðgjöfin 2025/2026 vegna aukningar í stofnstærð og nýliðun.
Gæði stofnmats
Niðurstöður stofnmatsins árið 2026 eru í samræmi við niðurstöðurnar fyrri ára.
Keila. Núverandi stofnmat (rauð lína) borið saman við stofnmat áranna 2022–2025.
Aðrar upplýsingar
Seinni ár hefur orðið aukning á keiluafla við Grænland og haldi þær veiðar áfram þarf að tryggja sýnatöku úr afla á því svæði svo að gögnin séu lýsandi fyrir allan stofninn. Rannsóknaleiðangrar Náttúrufræðistofnunar Grænlands hafa leitt í ljós að útbreiðsla keilu við Grænland nær frá íslensku landhelginni og meðfram landgrunninu suður að 62°00ˈ N. Magn keilu við Austur-Grænland er þó ekki þekkt.
Ráðgjöf, aflamark og afli
Keila. Tillögur um hámarksafla, ákvörðun stjórnvalda um aflamark og afli (tonn). Athugið að afli og aflamark á Íslandsmiðum miðast við fiskveiðiár en afli á öðrum miðum miðast við almanaksár.
Fiskveiðiár | Tillaga | Aflamark fyrir Ísland | Afli Íslendinga á Íslandsmiðum | Afli annarra þjóða á Íslandsmiðum4) | Afli alls á Íslandsmiðum | Afli við Austur-Grænland3) | Aflamark við Austur-Grænland3) |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
2010/2011 | 6 000 | 6 000 | 6 235 | 1 898 | 6 235 | 175 | |
2011/2012 | 6 900 | 6 900 | 5 983 | 1 606 | 5 983 | 253 | |
2012/2013 | 6 700 | 6 700 | 5 555 | 1 336 | 5 569 | 427 | |
2013/2014 | 6 300 | 6 300 | 4 850 | 1 360 | 5 438 | 306 | |
2014/2015 | 4 000 | 4 000 | 4 136 | 1 304 | 5 440 | 1 658 | 1 500 |
2015/2016 | 3 440 | 3 440 | 3 221 | 900 | 4 121 | 606 | 1 500 |
2016/2017 | 3 780 | 3 780 | 1 689 | 729 | 2 418 | 781 | 1 500 |
2017/2018 | 4 3701) | 4 370 | 2 200 | 885 | 3 085 | 681 | 1 500 |
2018/2019 | 3 7761) | 3 776 | 2 453 | 778 | 3 231 | 565 | 1 500 |
2019/2020 | 3 8561) | 3 856 | 2 460 | 781 | 3 241 | 225 | 1 500 |
2020/2021 | 2 2891) | 2 289 | 2 192 | 757 | 2 949 | 702 | 1 500 |
2021/2022 | 2 1721) | 2 172 | 1 918 | 503 | 2 421 | 681 | 1 500 |
2022/2023 | 4 4642) | 4 464 | 2 421 | 640 | 3 061 | 776 | 1 500 |
2023/2024 | 5 1392) | 5 139 | 1 592 | 784 | 2 376 | 940 | 1 500 |
2024/2025 | 5 9142) | 5 914 | 1 608 | 339 | 1 947 | 915 | 1 500 |
2025/2026 | 7 4512) | 7 451 | |||||
2026/2027 | 9 0182) | ||||||
1) 13 % aflaregla | |||||||
2) FMGT = 0.23 | |||||||
3) Almannaksár (seinna árið á fiskveiðiári) | |||||||
4) Afli annarra þjóða fyrir 2014 er á almanaksári | |||||||
Heimildir og ítarefni
ICES. 2022. Workshop on the evaluation of assessments and management plans for ling, tusk, plaice and Atlantic wolffish in Icelandic waters (WKICEMP). ICES Scientific Reports. 4:37. 271 pp. http://doi.org/10.17895/ices.pub.19663971
Stofnmatsskýrslur Hafrannsóknastofnunar 2026. Keila. Hafrannsóknastofnun, 12. júní 2026.