LANGA Molva molva
Birting ráðgjafar: 6. júní 2025. Útgefið af Hafrannsóknastofnun.
Ráðgjöf
Hafrannsóknastofnun og Alþjóðahafrannsóknaráðið leggja til, í samræmi við aflareglu íslenskra stjórnvalda, að afli fiskveiðiárið 2025/2026 verði ekki meiri en 6 330 tonn.
Stofnþróun
Veiðihlutfall er yfir aflareglu stjórnvalda (FMGT), en undir varúðarmörkum (Flim) og gátmörkum (Fpa). Stærð hrygningarstofns er yfir aðgerðarmörkum (MGT Btrigger), gátmörkum (Bpa) og varúðarmörkum (Blim).
Langa. Afli eftir veiðarfærum, nýliðun (2 ára), veiðidánartala 8–11 ára og lífmassi hrygningarstofns. Skyggð svæði og öryggisbil sýna 95 % öryggismörk.
Stofnmat og gátmörk
Forsendur ráðgjafar | Aflaregla |
Aflaregla | Ráðgjöf byggir á fiskveiðidánartölu FMGT = 0.3 fyrir 8–11 ára og er margfaldað með SSBy/ MGT Btrigger þegar SSBy < MGT Btrigger. Þegar aflareglunni er beitt má vænta þess að fiskveiðidánartala sveiflist milli 0.21 og 0.44. |
Stofnmat | Tölfræðilegt aldurs-aflalíkan (SAM) |
Inntaksgögn | Aldurs og lengdargögn úr afla og stofnmælingum (SMB, SMH og SMN) og heildarafli. |
Nálgun | Viðmiðunarmörk | Gildi | Grundvöllur |
|---|---|---|---|
Aflaregla | MGT Btrigger | 11 100 | Samkvæmt aflareglu |
FMGT | 0.3 | Samkvæmt aflareglu | |
Hámarksafrakstur | MSY Btrigger | 11 100 | Byggt á Bpa |
FMSY | 0.3 | Leiðir til hámarksafraksturs til lengri tíma, byggt á slembihermunum (EqSim). | |
Varúðarnálgun | Blim | 9 000 | Lægsta SSB gildið (2016) með háa nýliðun |
Bpa | 11 100 | Blim x e^1.645 * 0.2^ | |
Fpa | 0.62 | Fp05, hámarks F þar sem líkur á því að SSB fari niður fyrir Blim eru <5 % |
Horfur
Atvinnuvegaráðuneytið hefur sett aflareglu fyrir löngu, sem síðast var uppfærð árið 2025. Samkvæmt aflareglunni er veiðidánaratala komandi fiskveiðiárs (FY/Y+1), sem hefst 1. september úttektarárið Y og líkur 31. ágúst ráðgjafarárið Y+1, ákvarðuð á eftirfarandi hátt:
\[ \text{F}_{Y⁄Y+1}=\text{min}\left(\frac{\text{SSB}_Y}{\text{MGT B}_{trigger}} ,1\right) \text{F}_{mgt} \]
Afli seinustu fjóra mánuði ársins Y (september til desember) er veiðidánartala ársins Y sett sem:
\[ \text{F}_Y=\frac{2}{3}\text{F}_{SQ} + \frac{1}{3}\text{F}_{MGT} \]
Fyrir árið Y+1 er F(Y⁄Y+1) is notað. Að lokum er aflamarkið (TACY⁄Y+1) reiknað á eftirfarandi hátt:
\[ \text{TAC}_{Y⁄Y+1}=\frac{1}{3}C[\text{F}_Y]+ \frac{2}{3} C[\text{F}_{Y/Y+1}] \]
þar sem aflinn (C[.]) er reiknaður samkvæmt aflajöfnu Baranovs byggt á tilsvarandi gildum á lífmassa, náttúrulegri dánartölu og veiðidánartölu hvert ár.
Langa. Forsendur fyrir stofnmatsárið og í framreikningum.
Breyta | Gildi | Athugasemdir |
|---|---|---|
F8-11ára (2025) | 0.35 | Gerir ráð fyrir óbreyttu F (F síðasta árs) fyrir 1. janúar–31. ágúst 2025 og FMGT fyrir 1. september–31. desember 2025; í tonnum |
Hrygningarstofn (2026) | 25 949 | Skammtímaspá; í tonnum |
Nýliðun 2 ára (2026) | 3 527 | Meðaltal seinustu 10 ára stofnmatsins; í þúsundum |
Nýliðun 2 ára (2027) | 3 527 | Meðaltal seinustu 10 ára stofnmatsins; í þúsundum |
Afli (2025) | 7 684 | Byggt á F8–11ára (2025); í tonnum. |
Langa. Áætluð þróun stofnstærðar (tonn) miðað við veiðar samkvæmt aflareglu.
Grunnur | Afli (2025/2026) | Veiðidánartala (2025/2026) | Hrygningarstofn (2027) | % Breyting á hrygningarstofni1) | % Breyting á ráðgjöf2) |
|---|---|---|---|---|---|
Aflaregla | 6 330 | 0.3 | 24 544 | -5 | -2 |
1) Hrygningarstofn árið 2027 miðað við hrygningarstofn 2026 | |||||
2) Ráðlagt aflamark fyrir 2025/2026 miðað við ráðlagt aflamark 2024/2025 (6479 t) | |||||
Gæði stofnmats
Niðustöður stofnmatsins í ár eru í samræmi við stofnmatið í fyrra.
Langa. Núverandi stofnmat (rauð lína) borið saman við stofnmat áranna 2021–2024. Stofnmatsaðferðin var endurskoðuð 2021 og því ætti stofnmat áranna frá 2022 að vera borið saman við viðmiðunarpunkta. Fyrir endurskoðunina var nýliðun metin við 3 ára aldur og því ekki sýnt.
Ráðgjöf, aflamörk og afli
Langa. Tillögur um hámarksafla samkvæmt aflareglu, ákvörðun stjórnvalda um aflamark og afli (tonn).
Fiskveiðiár | Tillaga | Aflamark | Afli Íslendinga | Afli annarra þjóða | Afli alls |
|---|---|---|---|---|---|
2010/2011 | 7 500 | 7 500 | 9 327 | 837 | 9 327 |
2011/2012 | 8 800 | 9 000 | 10 072 | 1 123 | 10 072 |
2012/2013 | 12 000 | 12 000 | 11 125 | 1 368 | 11 140 |
2013/2014 | 14 000 | 14 000 | 11 794 | 1 763 | 12 982 |
2014/2015 | 14 300 | 14 300 | 11 684 | 1 974 | 13 658 |
2015/2016 | 16 200 | 16 200 | 9 773 | 1 456 | 11 229 |
2016/2017 | 9 343 | 9 343 | 7 291 | 1 135 | 8 426 |
2017/2018 | 8 5981) | 8 598 | 7 017 | 1 309 | 8 326 |
2018/2019 | 6 2551) | 6 255 | 6 927 | 1 101 | 8 028 |
2019/2020 | 6 5991) | 6 599 | 5 972 | 1 183 | 7 155 |
2020/2021 | 5 7001) | 5 700 | 6 201 | 1 012 | 7 213 |
2021/2022 | 4 7351) | 4 735 | 5 814 | 885 | 6 699 |
2022/2023 | 6 0982) | 6 098 | 7 511 | 926 | 8 437 |
2023/2024 | 6 5662) | 6 566 | 8 114 | 1 282 | 9 396 |
2024/2025 | 6 4792) | 6 479 | |||
2025/2026 | 6 3302) | ||||
1) 18 % aflaregla | |||||
2) FMGT = 0.3 | |||||
Heimildir og ítarefni
ICES. 2022. Workshop on the evaluation of assessments and management plans for ling, tusk, plaice and Atlantic wolffish in Icelandic waters (WKICEMP). ICES Scientific Reports. 4:37. 271 pp. http://doi.org/10.17895/ices.pub.19663971
Stofnmatsskýrslur Hafrannsóknastofnunar 2025. Langa. Hafrannsóknastofnun, 6. júní 2025.