GULLKARFI Sebastes norvegicus
Birting ráðgjafar: 6. júní 2025. Útgefið af Hafrannsóknastofnun.
Ráðgjöf
Hafrannsóknastofnun og Alþjóðahafrannsóknaráðið ráðleggja, í samræmi við nýtingarstefnu sem mun leiða til hámarksafraksturs (MSY) til lengri tíma litið, að afli fiskveiðiárið 2025/2026 verði ekki meiri en 41 345 tonn á svæðinu Austur-Grænland / Ísland / Færeyjar.
Stofnþróun
Veiðiálag er undir kjörsókn (FMSY), gátmörkum (Fpa) og varúðarmörkum (Flim). Stærð hrygningarstofns er yfir aðgerðarmörkum (MSY Btrigger), gátmörkum (Bpa) og varúðarmörkum (Blim).
Gullkarfi. Afli eftir svæðum, nýliðun, veiðidánartala (9–19 ára) og stærð hrygningarstofns. Skyggð svæði og öryggisbil sýna 95 % öryggismörk.
Stofnmat og Gátmörk
Forsendur ráðgjafar | Hámarksafrakstur |
Aflaregla | Ráðgjöf byggir á fiskveiðidánartölu FMSY = 0.112 fyrir 9–19 ára og er margfaldað með SSBy/MSY Btrigger þegar SSBy < MSY Btrigger |
Stofnmat | Tölfræðilegt aldurs-aflalíkan (SAM) |
Inntaksgögn | Afli og lengdargögn úr afla frá Íslandi, Grænlandi og Færeyjum, lengdargögn úr stofnmælingum (SMB, SMH, stofnmælingar við Austur Grænland og Færeyjar), aldursgögn úr afla og stofnmælingu (SMH) við Ísland |
Nálgun | Viðmiðunarmörk | Gildi | Grundvöllur |
|---|---|---|---|
Hámarksafrakstur | MSY Btrigger | 154 094 | Bpa |
FMSY | 0.112 | Leiðir til hámarksafraksturs til lengri tíma, byggt á slembihermunum (EqSim). | |
Varúðarnálgun | Blim | 110 893 | Bloss. Lægsta sögulega gildi hrygningarstofns (1994) |
Bpa | 154 094 | Blim x e1.645 * 0.2 | |
Fpa | 0.114 | Fp05, hámarks F þar sem líkur á því að SSB fari niður fyrir Blim eru <5 % |
Horfur
Gullkarfi. Forsendur fyrir stofnmatsárið og í framreikningum.
Breyta | Gildi | Athugasemdir |
|---|---|---|
F9-19ára (2025) | 0.132 | Úr framreikningum fyrir árið 2025, byggt á áætluðum afla árið 2025; í tonnum |
Hrygningarstofn (2026) | 277 646 | Úr framreikningum stofnmats; í tonnum |
Nýliðun 6 ára (2025) | 42 905 | Úr stofnmati; í þúsundum |
Nýliðun 6 ára (2026) | 67 314 | Meðaltal nýliðunar síðustu fimm árgangana 2021–2025; í þúsundum |
Afli (2025) | 46 911 | Áætlaður afli á árinu (2025); í tonnum. |
Gullkarfi. Áætluð þróun stofnstærðar hrygningarstofns (tonn) miðað við veiðar samkvæmt kjörsókn.
Grunnur | Afli (2026) | Veiðidánartala (2026) | Hrygningarstofn (2027) | % Breyting á hrygningarstofni1) | % Breyting á ráðgjöf2) |
|---|---|---|---|---|---|
Hámarksafrakstur | 41 345 | 0.112 | 265 015 | -5 | -12 |
1) Hrygningarstofn árið 2027 miðað við hrygningarstofn 2026 | |||||
2) Ráðlagt aflamark fyrir 2026 miðað við ráðlagt aflamark 2025 miðað við ráðlagt aflamark (46911 t) | |||||
Ráðlagt aflamark fyrir fiskveiðiárið 2025/2026 er lægra en ráðgjöf síðasta fiskveiðiárs vegna þess að hrygningarstofninn er metinn minni.
Gæði stofnmats
Samræmi þessa stofnmats við stofnmat fyrri ára er talið viðunandi,
Gullkarfi er torfufiskur og því fæst stærsti hluti hans í stofnmælingum í fáum, stórum togum sem getur leitt til tilviljanakenndra sveiflna í vísitölum milli ára.
Gullkarfi. Núverandi stofnmat (rauð lína) borið saman við stofnmat áranna 2021–2024. Ráðgjöfin árin 2023 og 2024 er byggð á nýju líkani. Áður miðaði nýliðun við 5 ára.
Aðrar upplýsingar
Frá árinu 2009 hefur vísitala smás gullkarfa (≤30 cm) verið mjög lág í stofnmælingaleiðöngrum. Þó svo að hrygningarstofn hafi verið endurmetin stærri í stofnmatinu í ár, hefur hann farið minnkandi síðan 2017. Stofnmatið gefur enn fremur til kynna að ekki sé að vænta umtalsverðrar nýliðunar á næstu árum og því er líklegt að afrakstursgeta stofnsins minnki í framtíðinni. Án nýliðunar er líklegt að stofninn minnki hratt sem leiðir til lægri ráðgjöfar.
Ekki er í gildi samkomulag milli strandríkjanna Grænlands, Íslands og Færeyja um stjórn veiða á gullkarfa. Samkomulag um stjórn veiða er í gildi milli Íslands og Grænlands sem var undirritað í júlí 2023 og byggir samkomulagið á aflareglu Alþjóðahafrannsóknaráðsins. Samkomulagið gildir frá árinu 2024.
Ráðgjöf, aflamark og afli
Gullkarfi. Tillögur um hámarksafla, ákvörðun stjórnvalda um aflamark og afli (tonn). Athugið að afli á Íslandsmiðum miðast við fiskveiðiár en afli á öðrum miðum og heildarafli miðast við almanaksár.
Fiskveiðiár | Tillaga | Aflamark fyrir Ísland | Afli á Íslandsmiðum | Afli við Austur-Grænland1) | Afli við Færeyjar1) | Afli alls1) |
|---|---|---|---|---|---|---|
2010/2011 | 30 000 | 37 500 | 39 432 | 1 006 | 493 | 45 272 |
2011/2012 | 40 000 | 40 000 | 44 514 | 1 973 | 491 | 45 553 |
2012/2013 | 45 000 | 45 000 | 46 549 | 1 484 | 372 | 53 186 |
2013/2014 | 52 000 | 52 000 | 52 451 | 2 706 | 202 | 50 683 |
2014/2015 | 48 0002) | 45 600 | 48 349 | 2 562 | 270 | 51 602 |
2015/2016 | 51 0002) | 48 500 | 54 818 | 5 442 | 179 | 59 657 |
2016/2017 | 52 8002) | 47 205 | 48 352 | 4 512 | 1 413 | 56 044 |
2017/2018 | 50 8002) | 45 450 | 51 857 | 4 005 | 1 128 | 53 147 |
2018/2019 | 43 6002) | 39 240 | 44 616 | 2 665 | 1 118 | 48 529 |
2019/2020 | 43 5682) | 38 896 | 41 251 | 4 105 | 1 304 | 46 097 |
2020/2021 | 38 3432) | 34 379 | 41 014 | 3 524 | 178 | 43 318 |
2021/2022 | 31 8552) | 28 554 | 33 403 | 2 210 | 128 | 32 375 |
2022/2023 | 25 5452) | 22 615 | 28 820 | 2 741 | 181 | 35 114 |
2023/2024 | 41 2862) | 36 462 | 37 303 | 4 587 | 271 | 43 193 |
2024/2025 | 46 9112) | 41 848 | ||||
2025/2026 | 41 3452) | |||||
1) Almanaksár | ||||||
2) Aflaregla fyrir Austur-Grænland/Ísland/Færeyjar. Færeyjar standa utan samkomulagsins | ||||||
Heimildir og ítarefni
Stofnmatsskýrslur Hafrannsóknastofnunar 2025. Gullkarfi. Hafrannsóknastofnun, 6. júní 2025.