Merking hrognkelsa

merkt grásleppaHafrannsóknastofnun og BioPol ehf á Skagaströnd hafa um langt árabil átt í samstarfi varðandi merkingar á hrognkelsum. Á myndinni má sjá merkta grásleppu.

Árið 2018 voru merkingar framkvæmdar með tvennum hætti. Annars vegar um 200 fiskar á hefðbundinni veiðislóð inni á Húnaflóa og hins vegar um 290 ungfiskar í alþjóðlegum makrílleiðangri norður og suður af Íslandi og við austurströnd Grænlands (sjá 1. mynd hér neðar). Ekki er vitað til þess að ungviði hafi áður verið merkt með þessum hætti en endurheimtur geta gefið mjög mikilvægar upplýsingar um vöxt hrognkelsa og hvert þau ganga til hrygningar.

Greiddar verða 5.000 kr fyrir hvern fisk sem berst í heilu lagi til BioPol á Skagaströnd. Einnig fær sendandi upplýsingar um hvar og hvenær fiskurinn var merktur.

Ef þú veiðir merktan fisk ertu beðinn um að hringja í númerið sem er á merkinu (896-7977) og tilkynnta staðsetningu. Ekki fjarlægja merkið en komið fiskinum sem fyrst í frysti og í kjölfarið verður reynt að nálgast hann. Eingungis er greitt ef fiskurinn skilar sér í heilu lagi og merkið er enn í honum.

Í makrílleiðangrinum 2018 veiddust hrognkelsi sem meðafli í efstu lögum sjávar á hafsvæði sem nær frá austur Grænlandi, allt í kringum Ísland og norður með Noregi. Mynd 2. sýnir útbreiðslu fiska sem fengust í leiðangrinum. Ekki er ljóst hvar þessi fiskur mun hrygna og hversu mörgum árum hann eyðir á þessum slóðum áður en hann kemur til hrygningar. Endurheimtur á merktum fiskum munu hugsanlega hjálpa til við að svara þessum spurningum.

Mynd 1. Staðsetning merktra hrognkelsa í makríl leiðangri árið 2018.

1. mynd. Staðsetning merktra hrognkelsa í makríl leiðangri árið 2018.

 

Mynd 2. Afli hrognkelsa í makíl leiðangri 2018.

2. mynd.  Afli hrognkelsa í makíl leiðangri 2018.







Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?