Leiðangurinn er hluti af langtímavöktun á umhverfisástandi sjávar, m.a. hita, seltu, straumum, næringarefnum, ólífrænu kolefni, og plöntusvifi (gróðri) og dýrasvifi (átu).
10. júlí
Rannsóknarleiðangri við kortlagningu búsvæða á hafsbotni nýlokið
Fimm vísindamenn unnu að því að varpa ljósi á heim hafsbotnsins og lýsa rannsóknarsvæðinu út frá gerð hans og þeim lífverum sem þar finnast.
08. júlí
Makrílleiðangur hafinn
Rannsóknaskipið Árni Friðriksson lagði úr höfn í morgun 7. júlí í árlegan, alþjóðlegan leiðangur með það meginmarkmið að meta magn og útbreiðslu makríls, kolmunna og norsk-íslenskrar síldar í norðaustur Atlantshafi að sumarlagi.
07. júlí
Göngumynstur þorsks sl. 75 ár í afmælisriti ICES Journal of Marine Science
Í nýrri grein sem kom út í 100 ára afmælisriti ICES Journal of Marine Science, er skoðað göngumynstur þorsks síðustu 75 ára (1951–2025). Göngurnar voru skoðaðar með tilliti til hitastigsbreytinga og framboðs á loðnu, sem er mikilvægasta fæða þorsks.
06. júlí
Fjórir nýir rafbílar teknir í notkun hjá Hafrannsóknstofnun
Hafrannsóknastofnun tók fyrr í vikunni við fjórum nýjum rafbílum af tegundinni Smart frá Öskju bílaumboði að undangengnu útboði.
03. júlí
Vísitala norsk-íslenskrar síldar hækkar um 16%
Niðurstöður alþjóðlegs uppsjávarleiðangurs frá maí síðastliðnum í Noregshafi og aðliggjandi hafsvæðum liggja nú fyrir. Eitt af meginmarkmiðum leiðangursins er að meta magn og útbreiðslu norsk-íslenskrar síldar og annara uppsjávartegunda.
24. júní
Ástand nytjastofna sjávar og ráðgjöf fyrir fiskveiðiárið 2026/2027
Í dag, 12. júní 2026, kynnir Hafrannsóknastofnun úttekt á ástandi nytjastofna og ráðgjöf fyrir næsta fiskveiðiár. Lagt er til aflamark fyrir á annan tug stofna á grundvelli langtímamarkmiða íslenskra stjórnvalda um sjálfbæra nýtingu.
12. júní
Vernd í hafi – ráðgjöf um Suður-landgrunnshlíðar
Hafrannsóknastofnun ráðleggur að landgrunnshlíðar Suðurlands frá Háfadjúpi í vestri til Papagrunns í austri og niður fyrir gil og hryggi sem skera landgrunnskantinn skuli njóta verndar.
10. júní
Blendingar steypireyðar og langreyðar rannsakaðir
Sérfræðingar hjá Hafrannsóknastofnun birtu nýlega yfirlitsgrein um tilvist blendinga steypireyðar og langreyðar í heimshöfunum. Greint hefur verið frá blendingum þessara tegunda í hvalveiðum í atvinnuskyni allt frá lokum 19 aldar.
08. júní
Varað við tínslu kræklings úr fjörum
Í árlegum vorleiðangri Hafró greindust eiturþörungar í miklu magni í sjósýnum í Faxaflóa og fyrir sunnan landið.