Mælingar hafsbotnsins varpa ljósi á skipsflakið HMS Rajputana
Kortlagning hafsbotnsins: Nýjar mælingar varpa ljósi á kunnuglegt skipsflak:
Á 400 metra dýpi, um það bil 80 sjómílur vestur af Snæfellsnesi liggur skipskrokkur á hafsbotninum sem er 155 metra langur og 20 metra breiður. Það sem er talið vera stefni skipsins rís 13 metra frá hafsbotninum og virðist snúa í vestur á ystu brún plógfars ísaldarjökuls, sem 330 metra breitt og 12 metra djúpt. Skutur skipsins virðist vera grafinn undir set og er skipið því líklega lengra en gögnin sýna. Umhverfis flakið má sjá smá hóla og hæðir sem gæti verið leifar af skipinu sjálfu.
23. apríl