Loðnumæling á nýju ári

Áætlað yfirferðasvæði loðnumælinga fimm skipa í byrjun janúar 2021. Áætlað yfirferðasvæði loðnumælinga fimm skipa í byrjun janúar 2021.

Áætlað er að halda til loðnumælinga 4. janúar eða eins snemma og veður leyfir. Mælingarnar verða framkvæmdar á rannsóknaskipunum Árna Friðrikssyni og Bjarna Sæmundssyni ásamt loðnuveiðiskipunum Ásgrími Halldórssyni SF, Aðalsteini Jónssyni SU og grænlenska skipinu Polar Amaroq. Um borð í öllum skipunum verða þrír starfsmenn Hafrannsóknastofnunar við að vakta bergmálstæki og vinna úr sýnum.

Áætlað er að yfirferðasvæðið (mynd) verði lítið eitt stærra en svæðið sem var farið yfir í desember og leiddi til veiðiráðgjafar upp á 22 þúsund tonn. Vonast er til að hægt verði að ná yfir svæðið út af Vestfjörðum sem var að hluta til hulið hafís í desembermælingunni.

Á áætlun er að farið verði aftur til mælinga í byrjun febrúar. Nákvæm tímasetning og umfang þess leiðangurs mun m.a. ráðast af veðri, útbreiðslu loðnu og aðstæðum til mælinga.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?