Hafeðlisfræðingur

Hafrannsóknastofnun leitar eftir sérfræðingi í hafeðlisfræði.

Hafrannsóknastofnun óskar eftir að ráða sérfræðing til starfa við rannsóknir á sviði hafeðlisfræði. Starfið felur í sér þátttöku í rannsóknaverkefnum, gagnasöfnun á sjó, úrvinnslu gagna og birtingu á niðurstöðum. Leitað er að einstakling sem hefur góða færni til að vinna í þverfaglegri teymisvinnu, en auk þess að sinna rannsóknum á sviði hafeðlisfræði myndi einstaklingurinn taka þátt í þverfaglegum rannsóknum til að auka þekkingu á vistkerfum sjávar. Umsækjendur þurfa að hafa lokið doktorsprófi í hafeðlisfræði, hafa reynslu af rannsóknum og birtingu niðurstaðna.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þátttaka í ýmsum rannsóknaverkefnum sem tengjast haffræði og vistfræði.
  • Söfnun og úrvinnsla umhverfisgagna.
  • Þátttaka í rannsóknaleiðöngrum um borð í rannsóknaskipum.
  • Birting niðurstaðna í vísindagreinum, skýrslum og erindum.

Hæfniskröfur

  • Doktorspróf í hafeðlisfræði eða skyldum greinum.
  • Reynsla af rannsóknum á sviði hafeðlisfræði og birtingu rannsóknaniðurstaðna í ritrýndum vísindatímaritum.
  • Metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Jákvætt viðmót, samstarfsvilji og hæfni til að vinna í teymi.
  • Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á ensku.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Starfshlutfall er 100%.

Umsóknarfrestur er til og með 13. febrúar 2022.

Umsókn skal fylgja:

  • Ítarleg ferilskrá.
  • Afrit af prófskírteinum.
  • Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
  • Tilnefning a.m.k. tveggja meðmælenda.

Sótt er um starfið á Starfatorgi og verður öllum umsóknum svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina og áskilur stofnunin sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur.
Gerð er krafa um að umsækjendur hafi hreint sakavottorð.

Við ráðningu í störf hjá Hafrannsóknastofnun er tekið mið af jafnréttisáætlun stofnunarinnar og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um.

Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, er stærsta rannsóknastofnun landsins á sviði hafs- og vatnarannsókna og gegnir auk þess ráðgjafarhlutverki varðandi sjálfbæra nýtingu og verndun auðlinda hafs og vatna. Hún heyrir undir matvælaráðuneytið. Stofnunin rekur, auk aðalstöðvar í Hafnarfirði, starfsstöðvar vítt og breitt um landið, tilraunaeldisstöð, tvö rannsóknaskip og hjá stofnuninni starfa að jafnaði um 190 manns í fjölbreyttum störfum.

Nánari upplýsingar veitir

Hrönn Egilsdóttir, sviðsstjóri umhverfissviðs - hronn.egilsdottir@hafogvatn.is - 695 6705

Smelltu hér til að sækja um starfið


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?