Verður ráðgátan um stöðvakóng leyst með erfðafræði?
Næstkomandi mánudag, þann 26. maí verður haldin síðasta málstofa vorannar 2025 þegar Áki Jarl Lárusson flytur erindið: Stöðvakóngur (Buccinum superangulare) - ráðgátan leyst með erfðafræði?
Í dag fögnuðu rannsóknarmenn og áhöfn um borð í nýju rannsóknaskipi Hafrannsóknastofnunar, Þórunni Þórðardóttur, í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá fæðingu Þórunnar heitinnar Þórðardóttur, sem skipið ber nafn sitt af.
Ross Edgley ætlar að synda 1.000 mílur á 100 dögum, í allt að 100 feta öldum og stundum samhliða háhyrningum. Hann tekur þátt í verkefninu Historic Open Water Challenge og er í samstarfi við Hafrannsóknastofnun, Matís og Háskóla Ísland m.a. til að stuðla að aukinni þátttöku almennings í vísindastarfi.
Hafrannsóknastofnun boðar til fundar um málefni ferskvatnsfiska fimmtudaginn 22. maí 2025, í aðdraganda komandi veiðisumars. Fundurinn verður haldinn í húsakynnum Hafrannsóknastofnunar að Fornubúðum 5 í Hafnarfirði en verður einnig í fjarfundi (Teams).